Viðskipti erlent

Flugu yfir At­lants­hafið á fitu og sykri

Samúel Karl Ólason skrifar
Farþegaþotunni var lent í New York í gærkvöldi.
Farþegaþotunni var lent í New York í gærkvöldi. AP/Jason DeCrow

Flugmenn Virgin Atlantic flugu í gær farþegaþotu yfir Atlantshafið á eingöngu fitu og sykri, ekki hefðbundnu eldsneyti. Er það í fyrsta sinn sem slíkt er gert en flugvélin losar um sjötíu prósent minna af gróðurhúsalofttegundum en hefðbundnar farþegaþotur.

Flugvélinni var flogið frá Lundúnum til New York en engir farþegar voru um borð, þar sem um tilraunaflug var að ræða. Þá mun Virgin ekki bjóða upp á aðrar slíkar flugferðir á næstunni, þar sem þessari var eingöngu ætlað að sýna fram á að hægt væri að gera flugferðir vistvænni.

Flogið var á Boeing 787 flugvél sem búin er Rolls-Royce Trent 1000 þotuhreyflum. Eldsneytið sem notað var í flugferðina er að mestu úr notaðri matarolíu, afgangsdýrafitu og afurðum úr úrgangskorni.

Sérfræðingar segja eldsneyti sem þetta geta spilað stóra rullu í að draga úr losun flugiðnaðarins, samkvæmt frétt Washington Post. Enn sem komið er er þó mjög lítið af þessu eldsneyti framleitt og það er frekar dýrt. Þá eru þotuhreyflar ekki hannaðir til að brenna eingöngu vistvænt eldsneyti.

Hægt er að blanda vistvænu eldsneyti við hefðbundið eldsneyti til að draga úr losun flugvéla og er það gert víða.

Richard Branson, eigandi Virgin Galactic, er hér með sendiherra Bretlands í Bandaríkjunum, aðstoðarsamgönguráðherra Bandaríkjanna, og öðrum.AP/Jason DeCrow

Í frétt Reuters kemur fram að um tvö til þrjú prósent allrar losunar gróðurhúsalofttegunda í heiminum kemur frá flugiðnaðinum.

Mark Harper, samgönguráðherra Bretlands, var um borð í flugvélinni en við lendingu sagðist hann engan mun hafa fundið á þessari flugferð og öðrum. Richard Branson, eigandi Virgin, sagði við lendinguna að það myndi taka tíma að auka framleiðslu á vistvænu eldsneyti en einhversstaðar þyrfti fólk að byrja.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×