Sport

Liðið sem allir hlógu að í septem­ber vinnur nú alla leiki í NFL-deildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jalen Hurts átti enn einn stórleikinn og fagnar hér sigri Philadelphia Eagles í gær.
Jalen Hurts átti enn einn stórleikinn og fagnar hér sigri Philadelphia Eagles í gær. AP/Matt Slocum

Philadelphia Eagles varð í gær fyrsta liðið í NFL-deildinni til að vinna tíu leiki á tímabilinu eftir sigur í æsispennandi leik á móti Buffalo Bills.

Philadelphia menn unnu 37-34 í framlengingu í leik sem Buffalo Bills þurfi nauðsynlega á sigri að halda. Lengi leit út fyrir að Josh Allen væri að sjá til þess að sigurinn kæmi í höfn. Karakter Arnanna sýndi sig hins vegar enn á ný.

Eagles liðið hefur verið undir í hálfleik í síðustu fjórum leikjum sínum en unnið þá alla. Aftur var það frábær frammistaða Jalen Hurts sem lagði grunninn að sigrinum. Hann kom að fimm snertimörkum, skoraði tvö sjálfur og gaf einnig þrjár snertimarkssendingar.

Ernirnir hafa nú unnið fimm leiki í röð og tíu af ellefu leikjum tímabilsins. Buffalo menn eru aftur á moti aðeins í tíunda sæti í Ameríkudeildinni og eiga það á hættu að missa af úrslitakeppninni.

Það sem vekur athygli að liðið sem deilir nú lengstu lifandi sigurgöngunni í deildinni með Eagles er lið Denver Broncos sem vann líka sinn fimmta leik í röð.

Broncos tapaði illa í upphafi móts, fimm af fyrstu sex leikjum sínum og þar á meðal með fimmtíu stigum, 70-20, á móti Miami Dolphins í september. Eftir það tap var liðið aðhlátursefni ekki síst þjálfarinn Sean Payton og leikstjórnandinn Russell Wilson.

Liðið náði aftur á móti að fóta sig og snúa við blaðinu. Denver vann 29-12 sigur á Cleveland Browns í gær en hafði áður unnið Green Bay Packers, Kansas City Chiefs, Buffalo Bills og Minnesota Vikings í einni samfellu.

Patrick Mahomes fór fyrir liði Kansas City Chiefs sem kom til baka og vann 31-17 sigur á Las Vegas Raiders. Liðið hefur unnið átta leiki alveg eins og Jacksonville Jaguars.

Ekkert gengur hjá Bill Belichick og lærisveinum hans í New England Patriots sem töpuðu öðrum leiknum í röð þar sem liðið fékk aðeins á sig tíu stig. Vandamálið er að Patriots menn hafa aðeins skorað þrettán stig samtals í þessum síðustu tveimur leikjum. Liðið hefur líka tapað fjórum leikjum í röð og er með lélegasta árangurinn í Ameríkudeildinni.

  • Úrslitin í NFL-deildinni:
  • Los Angeles Chargers-Baltimore Ravens 10-20
  • Atlanta Falcons-New Orleans Saints 24-15
  • Cincinnati Bengals-Pittsburgh Steelers 10-16
  • Houston Texans-Jacksonville Jaguars 21-24
  • Indianapolis Colts-Tampa Bay Buccaneers 27-20
  • New York Giants-New England Patriots 10-7
  • Tennessee Titans-Carolina Panthers 17-10
  • Arizona Cardinals-Los Angeles Rams 14-37
  • Denver Broncos-Cleveland Browns 29-12
  • Las Vegas Raiders-Kansas City Chiefs 17-31
  • Philadelphia Eagles-Buffalo Bills 37-34 (framlenging)
NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×