Viðskipti innlent

Kon­ráð frá Arion banka til Þór­dísar

Árni Sæberg skrifar
Konráð S. Guðjónsson er nýr aðstoðarmaður fjármálaráðherra.
Konráð S. Guðjónsson er nýr aðstoðarmaður fjármálaráðherra. Vísir/Vilhelm

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur ráðið Konráð S. Guðjónsson sem aðstoðarmann. Konráð hefur undanfarið hálft ár starfað sem aðalhagfræðingur Arion banka.

Þetta segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Þar segir að Konráð sé hagfræðingur með B.Sc. gráðu frá Háskóla Íslands og M.Sc. frá Warwick háskóla. Hann hafi áður starfað hjá Stefni, dótturfélagi bankans, og áður í greiningardeild bankans. 

Konráð hafi verið hagfræðingur og aðstoðarframkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands í fjögur ár og starfað að auki tímabundið sem efnahagsráðgjafi Samtaka atvinnulífsins. Þá hafi hann einnig sinnt kennslustörfum, auk þess að starfa hjá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands og við þróunarsamvinnu í Úganda og Tansaníu. 

Konráð er fæddur árið 1988, alinn upp á Vopnafirði og er kvæntur Tinnu Isebarn.

Inga Hrefna Sveinbjarnardóttir er hinn aðstoðarmaður fjármála- og efnahagsráðherra.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×