Innlent

Alexander Máni dæmdur í sex ára fangelsi

Árni Sæberg skrifar
Alexander Máni mætir í héraðsdóm við þingfestingu málsins.
Alexander Máni mætir í héraðsdóm við þingfestingu málsins. Vísir/Vilhelm

Alexander Máni Björnsson, tvítugur karlmaður, hefur verið dæmdur til sex ára fangelsisvistar, fyrir aðild sína að hnífstunguárásinni á Bankastræti Club.

Alexander Máni var einn 25 sem sættu ákæru í málinu. Hann var einn ákærður fyrir þrjár tilraunir til manndráps, tíu sættu ákæru fyrir sérlega hættulegar líkamsárásir og fjórtán fyrir hlutdeild í brotunum.

Hann var sakfelldur fyrir tvær tilraunir til manndráps en sýknaður af ákæru fyrir þá þriðju. Þetta staðfestir Ómar R. Valdimarsson, verjandi hans, í samtali við fréttastofu fyrir utan dómsal.

Ómar R. Valdimarsson við komu í héraðsdóm í morgun.Vísir/Vilhelm

Refsingu flestra hefur verið frestað en nokkrir voru dæmdir í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi, nokkrir til í sextíu daga skilorðsbundið fangelsi, einn í fjögurra mánaða fangelsi, tveir í átta mánaða fangelsi og einn í tólf mánaða fangelsi.

Fylgst var með gangi mála í vaktinni, sem lesa má í fréttinni hér að neðan:

Í ákæru málsins sagði að einn mannanna hafi hlotið tvö sár yfir hægri axlarvöðva, tvö stungusár á hægri brjóstkassa, tvö djúp sár á hægra aftanverðu læri, eitt sár á hægri framhandlegg, áverkablóðloftbrjóst, áverkaloftbrjóst, rifbeinsbrot og mar á nefi.

Annar hafi fengið sár aftanvert vinstra megin milli rifs 10 og 11, um 15 millimetra langa rifu neðst í milta og lítilsháttar staðbundna blæðingu þar í kring, áverka á vísifingur vinstri handar, þar sem húðflipi lá laus frá hnúa út fingur, mar á enni og skrámur í andliti.

Sá þriðji hafi fengið fjögurra til fimm sentímetra skurð á framhandlegg með áverka á sinum tveggja réttivöðva, djúpan skurð á hægra læri með stöðugri slagæðablæðingu, þrjá skurði í andliti og sár og mar vinstra megin á höfði.

Játaði fyrst að hafa stungið alla, svo bara tvo og loks aðeins einn

Upphaflega játaði Alexander Máni í skýrslutöku hjá lögreglu að hafa stungið alla mennina þrjá en við þingfestingu málsins breytti hann afstöðu sinni. Þá gekkst hann við því að hafa stungið tvo brotaþola.

Við upphaf þinghalds þegar málflutningur verjanda í málinu átti að hefjast þann 2. október síðastliðinn varð uppi fótur og fit í veislusalnum Gullhömrum, sem notaður var sem dómsalur í málinu, þegar Alexander Máni dró aðra játninguna skyndilega til baka.

Nota þurfti búkmyndavél lögregluþjóns til þess að taka skýrslu af Alexander Mána, enda var búið að ganga frá öllum upptökubúnaði þar sem skýrslutökum átti að vera lokið.

Sigríður Hjaltested dómari í málinu sagði það óvirðingu við réttinn að breyta afstöðu sinni á síðustu stundu. Ómar Valdimarsson, verjandi Alexanders Mána, sagði afstöðu skjólstæðings síns hafa breyst kvöldið áður.

Fórnarlömb stigu fram í útvarpsviðtali

Tveir mannanna sem Alexander Máni var sagður hafa stungið, þeir Lúkas Geir Ingvarsson og Jhon Sebastian, lýstu árásinni í samtali við útvarpsmanninn Gústa B tveimur dögum eftir að hún var framin.

Sakborningarnir 25 í málinu báru flestir um það í skýrslutökum að tilgangurinn með því að fara inn á Bankastræti Club að kvöldi 17. nóvember síðastliðins væri að ræða við meðlimi svokallaðs „Latino-hóps“. Meðlimir þess hóps hefðu árin á undan hótað mönnum úr röðum sakborninga og fjölskyldum þeirra margvíslegu ofbeldi.

Þá hafi þeir til að mynda lagt eld að bifhjólum í eigu besta vinar Alexanders Mána skömmu fyrir árásina á skemmtistaðnum.

Þeir Lúkas Geir og Jhon sögðust í skýrslutökum fyrir dómi ekkert kannast við svokallaðan „Latino-hóp“ né meinta vargöld sem sakborningarnir lýstu.


Tengdar fréttir

Dreifðu grímum á Dubliner og ræddu vopnaburð á Prikinu

Sakborningar í Bankastrætis Club málinu báru um fyrir dómi að um hafi verið að ræða einhvers konar uppgjör við hóp manna sem kallaður hefur verið „Latino-hópurinn“. Sakborningarnir hafi ruðst 25 saman inn á skemmtistað til þess að ógna meðlimum hópsins.

„Ég gerði mér ekki grein fyrir því að ég hefði játað að hafa stungið alla þrjá“

Alexander Máni Björnsson, tæplega tvítugur karlmaður sem sætir ákæru fyrir þrjár tilraunir til manndráps á Bankastræti Club í febrúar í fyrra, segir að hann hafi ekki gert sér grein fyrir því að hann væri að játa þrjár hnífstungur við þingfestingu málsins. Hann játar að hafa stungið tvo en ekki að hafa ætlað að ráða þeim bana.

Vildi spila við­tal við brota­þola

Skýrslutökur brotaþola og annarra vitna hófust í morgun og því er töluvert fjölmennara í dómsal í Gullhömrum við aðalmeðferð Bankastrætis Club málsins en síðustu daga. Þónokkrir sem sæta ákæru eru mættir til þess að fylgjast með framgangi mála, þar á meðal sá eini sem ákærður er fyrir að hafa reynt að verða brotaþolum að bana.

Verj­endur ó­á­nægðir með kaffi­skort

Á þriðja tug lögmanna eru saman komnir til þess að verja skjólstæðinga sína í Bankastrætis Club málinu svokallaða í veislusalnum Gullhömrum í dag. Skipuleggjendur aðalmeðferðarinnar virðast hafa gleymt að hella upp á kaffi, verjendum til mikils ama.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×