Golf

Tiger og Rory fresta golfdeildinni sinni um eitt ár eftir að þakið gaf sig

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Rory McIlroy og Tiger Woods eru góðir vinir og líka viðskiptafélagar.
Rory McIlroy og Tiger Woods eru góðir vinir og líka viðskiptafélagar. Getty/Maddie Meyer

Kylfingarnir Tiger Woods og Rory McIlroy ætla að bíða með það til ársins 2025 með að setja af stað nýju golfdeildina sína sem á að fara fram í tæknivæddri innanhússhöll.

Höllin er staðsett á Flórída og hún fór illa út óveðri á dögunum. Þakið gaf sig í óveðrinu þegar rafmagnið fór af.

TGL deildin sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem sagt var frá skemmdunun. Þakið féll saman en sem betur fer skemmdist tölvubúnaðurinn ekki neitt.

Fyrsta tímabilið í þessari sex liða keppni átti að hefjast eftir aðeins fimm vikur en nú hefur verið ákveðið að fyrsta keppnin fari ekki fram fyrr en árið 2025.

Sex lið eiga að keppa við hvert annað og efstu liðin komast síðan í úrslitakeppni. Deildin á að vera í gangi frá 9. janúar og klárast áður en Mastersmótið hefst í apríl.

Alls munu 24 kylfingar taka þátt og verða fjórir kylfingar í hverju liði. Meðal þeirra sem höfðu staðfest þátttöku voru Rickie Fowler, Tommy Fleetwood, Collin Morikawa, Justin Thomas, Justin Rose, Adam Scott og svo auðvitað Rory McIlroy og Tiger Woods.

Kylfingarnir munu slá lengri skotin í risastóran golfhermi en skotin í kringum flötina fara fram á sérstakri hátækniflöt. Golfhöggin eru slegin úr eðlilegum aðstæðum, hvort sem undirlagið er gras eða sandur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×