Veður

Hvessir í kvöld og má búast við stormi í fyrra­málið

Atli Ísleifsson skrifar
Það bætir í vind í nótt, og í fyrramálið er útlit fyrir sunnan hvassviðri eða storm með áframhaldandi rigningu og hlýju veðri.
Það bætir í vind í nótt, og í fyrramálið er útlit fyrir sunnan hvassviðri eða storm með áframhaldandi rigningu og hlýju veðri. Vísir/Vilhelm

Djúp lægð er nú við suðvesturhluta Grænland og mun hún nálgast Ísland smám saman í dag. Það verður því hægt vaxandi suðlæg átt á landinu fyrri parts dags og væta með köflum, en þurrt og bjart fyrir austan.

Á vef Veðurstofunnar segir að það muni hlýna í veðri. Síðdegis munu þó skil frá lægðinni ganga inn yfir landið og mun þá bæta í vind og úrkomu. Í kvöld má svo búast við allhvassri sunnanátt með talsverðri rigningu sunnan- og vestanlands.

„Það bætir enn frekar í vind í nótt, og í fyrramálið er útlit fyrir sunnan hvassviðri eða storm með áframhaldandi rigningu og hlýju veðri, en eftir hádegi á morgun verður vindur suðvestlægari og það kólnar með skúrum eða éljum. Á norðaustanverðu landinu verður úrkoma þó lítil sem engin.

Á miðvikudag dregur svo hægt og bítandi úr vindi, en áfram má búast við skúrum eða éljum á vestanverðu landinu,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag: Sunnan 15-23 m/s um morguninn og rigning, en þurrt að kalla um landið norðaustanvert. Hiti 7 til 12 stig. Vestlægari eftir hádegi með skúrum eða éljum og kólnandi veðri, en léttir til á Austurlandi.

Á miðvikudag: Vestan og suðvestan 13-18, en dregur smám saman úr vindi síðdegis. Víða él, en yfirleitt þurrt austanlands. Hiti 0 til 4 stig.

Á fimmtudag: Gengur í norðvestan 13-20 austantil á landinu, annars mun hægari. Dálítil él, en léttir til um landið sunnan- og vestanvert. Frost 0 til 7 stig.

Á föstudag: Norðlæg átt 3-10, en 10-15 austantil. Víða léttskýjað og frost 1 til 8 stig.

Á laugardag: Norðaustlæg átt og bjartviðri, en dálítil él um landið norðaustanvert. Hiti breytist lítið.

Á sunnudag: Norðaustanátt og dálítil él, en bjart að mestu sunnan heiða. Svalt í veðri.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×