Veður

Lítið lát á aust­lægu áttunum

Atli Ísleifsson skrifar
Eftir helgi benda spár til að umhleypinga sé von svo þá er líklega friðurinn úti.
Eftir helgi benda spár til að umhleypinga sé von svo þá er líklega friðurinn úti. Vísir/Vilhelm

Lítið lát er á austlægu áttunum sem hafa verið viðvarandi í lengri tíma. Dálítil úrkoma er viðloðandi landið sunnan- og austanvert, en yfirleitt þurrt fyrir norðan og vestan.

Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Hiti verður um frostmark í innsveitum fyrir norðan, en fer upp í átta stiga hita syðst.

„Um helgina er útlit fyrir svipað veðurlag áfram en hægari vindur og þá kólnar heldur og hálka getur verið varasöm.

Eftir helgi benda spár til að umhleypinga sé von svo þá er líklega friðurinn úti,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag: Suðaustan 5-10 m/s og rigning eða slydda með köflum sunnantil, en hægari vindur og þurrt annars staðar. Hiti 0 til 7 stig, hlýjast syðst.

Á laugardag: Austan 5-15 m/s, hvassast syðst. Skýjað að mestu, en dálítil væta með suður- og austurströndinni. Hiti 0 til 6 stig, mildast sunnantil.

Á sunnudag: Hæg norðaustlæg eða breytileg átt og rigning eða slydda austanlands, en annars þurrt. Hiti víða kringum frostmark, en 1 til 5 stig við sjávarsíðuna.

Á mánudag: Hæg suðlæg eða breytileg átt og skýjað með köflum, en slydda nyrst og austast í fyrstu. Svalt í veðri. Vaxandi sunnanátt með hlýnandi veðri og fer að rigna vestast um kvöldið.

Á þriðjudag: Ákveðin sunnan- og síðar suðvestanátt með rigningu og hlýnandi veðri, en skúrir eða slydduél og kólnar aftur vestantil.

Á miðvikudag: Útlit fyrir ákveðna suðvestanátt með skúrum eða éljum og svölu veðri, en þurrt austantil.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×