Viðskipti innlent

Húsasmiðjan á nýjum stað á Sel­fossi rétt hjá Byko

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
 Guðrún Tinna og Sverrir í nýju versluninni á Selfossi, sem opnaði í morgun klukkan 08:00. Formlega opnun fyrir boðsgestir verður síðdegis á fimmtudaginn. Á laugardaginn verður fjölskylduhátíð með blöðrum, veitingum, Latabæ og annarri gleði.
Guðrún Tinna og Sverrir í nýju versluninni á Selfossi, sem opnaði í morgun klukkan 08:00. Formlega opnun fyrir boðsgestir verður síðdegis á fimmtudaginn. Á laugardaginn verður fjölskylduhátíð með blöðrum, veitingum, Latabæ og annarri gleði. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Húsasmiðjan og Blómaval opnuðu nýtt og glæsilegt húsnæði í morgun við Larsenstræti á Selfossi við hlið Byko og Bónus og annarra fyrirtækja í nágrenninu. Verslunin var við Eyraveginn. Ískraft er líka í nýja húsnæðinu, sem er um fimm þúsund fermetrar að stærð.

„Þetta er flottasta byggingavöruverslun í Evrópu, ég fullyrði það, sjón er sögu ríkari, enda hefur engu verið til sparað til við byggingu húsnæðisins og innanstokksmuna, við erum í skýjunum“, segir Sverrir Einarsson, verslunarstjóri. Um 60 starfsmenn vinna á nýja staðnum.

Sigríður Runólfsdóttir, aðstoðarverslunarstjóri á Selfossi, sem stýrir meðal annars nýju timbursölunni.Magnús Hlynur Hreiðarsson

„Við leggjum áherslu á þarfir viðskiptavina, aukna upplýsingagjöf, stafræna tækni og aukin svæði með sýnishornum hér í nýju versluninni á Selfossi, sem er í sama anda og verslun okkar á Akureyri, sem var opnuð fyrir rúmu ári síðan,” segir Guðrún Tinna Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Húsasmiðjunnar og bætir við. „Ég er sannfærð um að viðskiptavinir okkar verði jafn ánægðir með þessa nýju verslun og við þar sem upplifun og vöruframboð er til fyrirmyndar. Við værum ekki hér nema fyrir viðskiptavininn.”

Ásthildur Óskarsdóttir (t.v.) og Halla Sigurjónsdóttir, vinna saman í Blómaval í nýja húsnæðinu.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Þorsteinn Óli Kjerúlf Sveinsson, verkefnisstjóri gæða, ferla og öryggismála, sem hefur verið allt í öllu við smíði nýju Húsasmiðjunnar á Selfossi. Hann var rekstrarstjóri Húsasmiðjunnar á Egilsstöðum í 20 ár.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Ánægðir viðskiptavinir, Eggert Guðmundsson (t.v.) og Brandur Gíslason.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Nýja húsnæðið við Larsenstræti á Selfossi.Magnús Hlynur Hreiðarsson




Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×