Fótbolti

Inter á toppinn á Ítalíu

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Federico Dimarco skoraði eitt af mörkum ársins í kvöld.
Federico Dimarco skoraði eitt af mörkum ársins í kvöld. EPA-EFE/MATTEO BAZZI

Inter er komið á topp Serie A, ítölsku úrvalsdeildina í knattspyrnu, þökk sé 2-0 sigri á Frosinone í síðasta leik dagsins.

Það stefndi allt í markalausan fyrri hálfleik en á 43. mínútu, markamínútunni sjálfri, skoraði vængbakvörðurinn Federico Dimarco með glæsilegu skoti fyrir utan vítateig. Reyndist það eina mark fyrri hálfleiks. Strax í upphafi síðari hálfleiks fengu heimamenn í Inter vítaspyrnu sem Hakan Çalhanoğlu skoraði úr.

Fleiri urðu mörkin ekki, lokatölur á San Siro 2-0 og Inter komið á topp Serie A með 31 stig að loknum 12 umferðum. Þar á eftir kemur Juventus með 29 stig, AC Milan með 23 stig og Napoli með 21 stig.


Tengdar fréttir

Markalaust í Róm

Lazio og Roma gerðu markalaust jafntefli í borgarslagnum um Róm í Serie A, ítölsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×