Innherji

Nýr for­­­stjór­­­i með raun­h­­æf­ar­i rekstr­­­ar­­­mark­m­­ið væri gott skref fyr­­­ir Mar­­­el

Helgi Vífill Júlíusson skrifar
Árni Oddur Þórðarson hefur verið lykilmaður í farsælli uppbyggingu Marels. Hann settist í stjórn Marels árið 2005 og var stjórnarformaður í átta ár og forstjóri í tíu ár. Árni Sigurðsson, aðstoðarforstjóri Marels, hefur verið ráðinn til að taka tímabundið við stöðunni, á meðan stjórn Marel leitar að nýjum forstjóra. Greinandi JP Morgan sagði í fyrir um það bil ári að nýtt hlutverk Árna hjá fyrirtækinu gæti verið vísbending um að horft sé til þess að hann taki við starfi forstjóra þegar fram líða stundir.
Árni Oddur Þórðarson hefur verið lykilmaður í farsælli uppbyggingu Marels. Hann settist í stjórn Marels árið 2005 og var stjórnarformaður í átta ár og forstjóri í tíu ár. Árni Sigurðsson, aðstoðarforstjóri Marels, hefur verið ráðinn til að taka tímabundið við stöðunni, á meðan stjórn Marel leitar að nýjum forstjóra. Greinandi JP Morgan sagði í fyrir um það bil ári að nýtt hlutverk Árna hjá fyrirtækinu gæti verið vísbending um að horft sé til þess að hann taki við starfi forstjóra þegar fram líða stundir.

Það gæti verið heilladrjúgt fyrir gengisþróun Marels að fá nýjan forstjóra sem setur rekstrarmarkmið sem félagið getur náð. Við það öðlast aftur fjárfestar trú á félaginu, segir greinandi í samtali við Innherja.


Tengdar fréttir

Þórð­ur Magn­ús­son hætt­ir sem stjórn­ar­for­mað­ur Eyr­is eft­ir 23 ára starf

Þórður Magnússon hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til endurkjörs í stjórn Eyris Invest. Hann hefur leitt félagið sem stjórnarformaður í 23 ár. Friðrik Jóhannsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Burðarás, mun taka við sem stjórnarformaður fjárfestingafélagsins. Hann mun koma nýr inn í stjórnina ásamt Elínu Sigfúsdóttur, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans. Kristín Pétursdóttir, annar stofnandi Auðar Capital, mun ekki heldur gefa kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu.

Þegar „ó­ró­lega deildin“ gerði byltingu í stærsta fjár­festinga­fé­lagi landsins

Eftir að feðgarnir Árni Oddur og Þórður Magnússon hafa farið með tögl og hagldir í Eyri Invest, kjölfestufjárfesti í Marel sem hefur löngum verið verðmætasta fyrirtækið í Kauphöllinni, allt frá stofnun um síðustu aldamót er fjárfestingafélagið nú á tímamótum með uppstokkun í stjórn og brotthvarfi Þórðar sem stjórnarformanns til meira en tuttugu ára. Umdeild fjármögnun Eyris undir lok síðasta árs þegar styrkja þurfti fjárhagsstöðuna reyndist afdrifarík og jók mjög stuðning hluthafa við sjónarmið minni fjárfesta í eigendahópnum, stundum nefndir „órólega deildin“, um að tímabært væri að gera gagngerar breytingar á starfsemi stærsta fjárfestingafélags landsins.

Eyrir Invest tapaði yfir 80 milljörðum eftir mikið verð­fall á bréfum Marels

Mikil umskipti urðu á afkomu Eyris Invest á árinu 2022 samtímis verulegri lækkun á hlutabréfaverði Marels, langsamlega stærstu eign fjárfestingafélagsins, og nam tapið samtals um 83 milljörðum króna. Til að tryggja fjárhagsstöðuna þurfti félagið að ráðast í endurfjármögnun á skuldum sínum undir lok síðasta árs en virkir vextir á breytanlegu láni sem Eyrir fékk frá erlendum sjóðum eru 17,4 prósent.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×