Skoðun

Gleymum því ekki að þetta er kald­rifjað „mann­dráp“

Davíð Bergmann skrifar

Er þetta dómafordæmið sem við viljum hafa þegar það er framið hrottalegt og miskunnarlaustmorð hér á landi, hvert erum við eiginlega að stefna í málefnum ungra afbrotamanna hér á landi?

Það er framið hrottalegt morð á ungum manni í blóma lífsins og þetta er dómsniðurstaðan. Ég fór að velta þessu fyrir mér eftir að dómur féll í stungumálinu þar sem maður lést eftir stunguárás við Fjarðarkaup í apríl. Stungumaðurinn var dæmdur í 10 ára fangelsi. Tveir vitorðsmenn fengu tveggja ára dóm og stúlka sem stóð hjá fékk eins árs skilorðsbundinn dóm.

Eru þetta rétt skilaboð út í samfélagið að dæma svona í jafn alvarlegu máli sem þessu? Ég spyr mig þeirra spurninga í dag þó svo að gerendurnir séu ungir að árum. Ég vil taka það fram hér að ég er ekki talsmaður hraðra refsinga en ég spyr mig samt sem áður þeirra spurninga eru einhver ákvæði í dómnum á afplánunartíma sem þessir krakkar þurfa að uppfylla, annað en að sitja dóminn af sér.

Gleymum því ekki að þetta er kaldrifjað morð á ungum manni í blóma lífsins og það er fólk í kringum þann sem var drepinn, sem er einungis skildir eftir með minninguna um hann og hann skilur eftir sig þriggja ára dóttur sem verður föðurlaus og fær að launum þrjár milljónir í miska. Og það út af 5000 kalli sem átti að rukka með vöxtum sem endar með þessari skelfingu.

Þurfum við ekki að fara horfast í augu við það hver harkan er orðin hér á landi og sér í lagi hjá ungu fólki í afbrotum eins og mannrán, hnífstungur, skotárásir og gróft ofbeldi af öllu tagi. Á þetta mál ekki að verða okkur að kenningu og eigum við ekki að fara gera eitthvað að alvöru í þessum málaflokki, hvenær ætlum við að fara vakna er það ekki löngu tímabært þó fyrr hefði verið.

Við þurfum ekki að finna upp hjólið í þessum efnum við getum tekið Breta, Dani, Bandaríkjamenn, Norðmenn eða Svía okkur til fyrirmyndar. Eins þurfum við ekki að fara yfir lækinn því það er búið að gera ýmislegt hér á landi. Ég hef meira segja sjálfur smíðaði sérstakt prógramm fyrir unga drengi hérna um árið og fékk meira segja úthlutað einni milljón frá velferðarsjóði barna í það starf. Það starf gekk út á það að veita ungum drengjum tilsjón sem höfðu villast af braut í lífinu og það náðist góður árangur í því starfi, þó svo að ég segi sjálfur frá. Það var gert í samstarfi með lögreglu, landhelgisgæslunni, slökkviliði, björgunarsveitir, tryggingarfélagi, sjúkrahúsum, og fyrrverandi fanga.

Það starf kallaði ég „hver ertu og hvert ertu að fara í lífinu“ En í stuttu máli eyðilagði Barnaverndarstofa starfið á endanum taldi það ekki nógu faglegt! Það er allt of langt að fara í það hérna en ég mun gera því góð skil seinna á öðrum vettvangi.

Ég vil koma með nýja nálgun í þessum málaflokki eins og ég hef talað fyrir um í dauf eyru ráðamanna í áratugi. Ég hef lengi verið þeirra skoðunar að YOT sem stendur fyrir “youth offending team” sé það sem við eigum að taka okkur til fyrirmyndar í þessum málaflokki. Sú hugmyndafræði kemur frá Bretlandi og gengur út á það að vekja unga afbrotamenn til umhugsunar hver eru orsök og afleiðingar afbrota. Ekki bara fyrir þá heldur fórnarlambið og þá sem standa því næst. Eins hans eigin fjölskylda sem verður vissulega fórnarlömb aðstæðna og samfélagið í held sinni. Það gleymist iðulega í þessari umræðu hver er réttur hins almenna borgara. Ef þetta hefði verið sonur minn sem hefði verið drepinn svona, hefði ég viljað þessa niðurstöðu. Stutta svarið við þeirri er nei ég hugsa að ég myndi taka lögin í mínar hendur til að koma fram réttlæti.

Dómsmálaráðherra ég er með ÁSKORUN til þín það þarf að gera eitthvað að alvöru í þessum málaflokki og ekki seinna en í gær.

Höfundur er ráðgjafi.


Tengdar fréttir

Að­koma stúlkunnar með símann „sví­virði­leg“

Meint fíkniefnaskuld var kveikjan að því að ungmenni ákváðu að veitast að 27 ára gömlum Pólverja fyrir utan Íslenska rokkbarinn í apríl. Brotaþoli lést eftir hnífstungur, högg og spörk. Héraðsdómari er ómyrkur í máli og lýsir atburðarásinni sem „leik kattarins að músinni“. 

Tíu ára fangelsi fyrir manndrápið við Fjarðarkaup

Sæmundur Tryggvi Norðquist Sæmundsson, tæplega nítján ára karlmaður, var í dag dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir manndráp á bílastæðinu við Fjarðarkaup í Hafnarfirði í apríl síðastliðnum. Tveir félagar hans í kringum átján ára aldur fengu tveggja ára dóm fyrir stórfellda líkamsárás. Sautján ára stúlka fékk tólf mánaða skilorðsbundinn dóm til fimm ára.

Deilur um fíkni­efni upp­hafið að hrotta­legu mann­drápi

Átök á milli þriggja 17 til 19 ára pilta við 27 ára pólskan karlmann sem lauk með manndrápi í Hafnarfirði í apríl má rekja til deilna sem tengdust fíkniefnum. Fólkið þekktist ekkert en því hafði verið vísað af Íslenska rokkbarnum fyrir neyslu fíkniefna fyrir opnum tjöldum. Aðalmeðferð í málinu er fyrirhuguð í október.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×