Samstarf

Góm­sætt Idol tíma­bil fram­undan

Nói Sírius
Idol Kroppið og Rjómasúkkulaðið með karamellukrókant koma í takmörkuðu magni
Idol Kroppið og Rjómasúkkulaðið með karamellukrókant koma í takmörkuðu magni

Idolið er væntanlegt aftur á skjáinn, mörgum til mikillar gleði. Og ekki minnkar það gleðina að Nói Síríus, samstarfsaðili þáttarins, hefur af því tilefni sett á markað ekki bara eina, heldur tvær nýjar og ljúffengar vörur sem hægt er að njóta í huggulegheitum fyrir framan skjáinn.

Fyrst ber að nefna Idol Kroppið goðsagnakennda, með smjör og salt bragði, sem snýr nú aftur og svo er það nýjungin: Idol Rjómasúkkulaði með karamellu krókant.

„Idol Kroppið vakti strax mikla lukku þegar það kom fyrst á markað sem Bíó Kropp og svo aftur sem Idol Kropp og í því kom auðvitað ekki annað til greina en að leyfa því að vera með,“ segir Helga Beck markaðsstjóri Nóa Síríus. „Í ljósi þessa góða samstarfs við Idol langaði okkur svo að bæta við nýrri vöru og niðurstaða þeirrar þróunarvinnu er Idol Rjómasúkkulaði með karamellu krókant, fullkomin blanda af sætu og smá krönsi“ bætir Helga við brosandi og efast ekki um að landsmenn muni taka þessari nýjung opnum örmum.

Bæði Idol Kroppið og Rjómasúkkulaðið með karamellukrókant koma í takmörkuðu magniog bætast í fríðan flokk Nóa Kropps og Síríus rjómasúkkulaðis sem prýða hillur verslana. Eins og í öllu öðru súkkulaði sem kemur frá Nóa Síríus er kakóhráefnið í Idol vörunum vottað af Cocoa Horizons samtökunum. Það þýðir að kakóhráefnin í súkkulaðið eru ræktuð á ábyrgan hátt með sjálfbærni til framtíðar að leiðarljósi.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×