Veður

Al­mennt ró­legt veður en allhvassir vindstrengir suðaustantil

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti á landinu verður yfirleitt á bilinu núll til sex stig. Myndin er af Garðskaga.
Hiti á landinu verður yfirleitt á bilinu núll til sex stig. Myndin er af Garðskaga. Vísir/Vilhelm

Veðurstofan gerir ráð fyrir rólegu veðri hér á landi í dag, norðaustan kalda eða stinningskalda og skúrum eða éljum. Þó má reikna með þurru og björtu á Suður- og Suðvesturlandi, en suðaustantil á landinu má búast við allhvössum vindstrengjum.

Á vef Veðurstofunnar segir að hiti verði yfirleitt á bilinu núll til sex stig.

„Keimlíkt veður á morgun, vindur verður þó heldur hægari og undir kvöld fer að rigna á Austurlandi.

Á laugardag er svo útlit fyrir áframhaldandi norðaustanátt með dálitlum skúrum eða éljum á Norður- og Austurlandi, en á sunnudag bætir líklega í vind og úrkomu,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag: Norðaustan 5-13 m/s og rigning eða snjókoma með köflum, en yfirleitt þurrt sunnan- og vestantil. Hiti 0 til 5 stig.

Á laugardag: Norðaustan 8-15 m/s og skúrir eða él, en úrkomulítið sunnan heiða. Bætir í vind síðdegis. Hiti breytist lítið.

Á sunnudag: Norðaustan 10-18 og él, en rigning eða slydda austantil. Þurrt að kalla um landið suðvestanvert. Hiti 0 til 6 stig, mildast syðst.

Á mánudag: Norðaustlæg átt og skúrir eða él, en úrkomulítið á Vesturlandi. Hiti breytist lítið.

Á þriðjudag og miðvikudag: Norðaustanátt og rigning eða snjókoma með köflum. Hiti 0 til 5 stig.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×