Veður

Bjart veður víðast hvar á landinu

Atli Ísleifsson skrifar
Reikna má með dálitlum skúrum eða éljum um landið austanvert.
Reikna má með dálitlum skúrum eða éljum um landið austanvert. Vísir/Vilhelm

Veðurstofan gerir ráð fyrir austlægri átt í dag, yfirleitt fimm tíu metrum á sekúndu en tíu til fimmtán metrum syðst á landinu. Bjart veður verður í fletum landshlutum en dálitlar skúrir eða él um landið austanvert.

Frost er á bilinu núll til átta stig nú í morgunsárið en gera má rá fyrir að það verði rétt yfir frostmarki yfir hádaginn.

„Norðaustan 5-13 m/s á morgun en 13-18 við suðurströndina. Dálítil rigning eða slydda austanlands en annars bjart með köflum. Hiti breytist lítið.

Norðaustan 10-18 m/s á fimmtudag. Rigning eða slydda með köflum á norðan- og austanverðu landinu en léttskýjað suðvestantil. Hiti 1 til 6 stig,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar.

Nokkuð vindasamt verður syðst á landinu í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag: Austan 5-10 m/s, en 10-15 syðst á landinu. Lítilsháttar skúrir eða él á austanverðu landinu, en léttskýjað vestantil. Hiti 0 til 4 stig yfir daginn, en allvíða undir frostmarki á Norðurlandi

Á fimmtudag: Norðaustan 8-13, en 13-18 suðaustantil á landinu. Dálitlar skúrir eða él, en bjartviðri á Suður- og Vesturlandi. Hiti um eða yfir frostmarki.

Á föstudag: Norðaustlæg átt 5-13 og snjókoma eða rigning, einkum seinnipartinn, en þurrt og bjart á sunnan- og suðvestanverðu landinu. Hiti kringum frostmark.

Á laugardag: Norðaustlæg átt og rigning eða slydda um norðan- og austanvert landið, en þurrt að kalla á sunnan- og suðvestanverðu landinu. Hiti 0 til 5 stig.

Á sunnudag: Norðaustanátt og rigning eða snjókoma en úrkomulítið suðvestantil. Hiti um eða yfir frostmarki.

Á mánudag: Útlit fyrir austlæga átt og rigningu eða slyddu með köflum í flestum landshlutum en lengst af þurrt á Suðvesturlandi. Hiti 1 til 7 stig, hlýjast syðst á landinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×