Fótbolti

Bayern München komst aftur á sigurbraut

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Kingsley Coman skoraði tvívegis fyrir Bayern í dag.
Kingsley Coman skoraði tvívegis fyrir Bayern í dag. Boris Streubel/Getty Images

Bayern München er komið aftur á sigurbraut í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eftir öruggan 3-0 sigur gegn Freiburg í dag.

Kingsley Coman kom heimamönnum Bayern yfir strax á tólftu mínútu eftir stoðsendingu frá Thomas Müller áður en Leroy Sane tvöfaldaði forystu liðsins eftir undirbúning Harry Kane.

Sane hélt svo að hann hefði komið heimamönnum í 3-0 á 44. mínútu, en markið dæmt af vegna ragnstöðu og staðan var því enn 2-0 þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja.

Kingsley Coman bætti hins vegar öðru marki sínu og þriðja marki Bayern við á 85. mínútu og þar við sat. Niðurstaðan því öruggur 3-0 sigur Bayern München sem nú situr í þriðja sæti þýsku úrvalsdeildarinnar með 17 stig eftir sjö leiki, tveimur stigum á eftir toppliði Bayer Leverkusen. Freiburg situr hins vegar í áttunda sæti með tíu stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×