Sport

Fékk 967 þúsund króna sekt fyrir að fara ekki í sokkana sína

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tyreek Hill skoraði snertimark sokkalaus en fékk að launum væna sekt.
Tyreek Hill skoraði snertimark sokkalaus en fékk að launum væna sekt. Getty/Ken Murray

NFL deildin hefur mjög strangar reglur um klæðaburð leikmanna í leikjum deildarinnar og það getur verið dýrt fyrir leikmenn að brjóta þær.

Minnstu smáatriði geta kallað á stóra sekt og því fékk einn allra besti útherji hennar að kynnast.

Tyreek Hill hefur farið á kostum með Miami Dolphins liðinu það sem far er tímabilinu og er þegar kominn með fjögur snertimörk og 470 jarda í fyrstu fjórum leikjunum.

Hill sagði blaðamanni Palm Beach Post frá því að hann hafi verið sektaður um sjö þúsund dali fyrir að fara ekki í sokkana. Það gerir um 967 þúsund íslenskar krónur.

Hill mætti sokkalaus í leik á móti Denver Broncos. Hann segist hafa verið í meðferð skömmu fyrir leikinn og að hann hafi ekki haft tíma til að fara í sokkana.

Það reyndist ágætlega því í þessum Denver Broncos leik þá skoraði Hill snertimark strax í upphafi leiksins en Miami burstaði leikinn á endanum með fimmtíu stiga mun.

Hill verður nú ekki í miklum vandræðum með að borga þessa sekt því hann er á 120 milljón dollara samningi eða samning upp á meira en 16,5 milljarða króna.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×