Lífið

Áttunda áratugnum gefið nýtt líf

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
IKEA fagnar nú áttatíu árum og af því tilefni hefur verið ákveðið að endurvekja nokkrar vinsælar og þekktar vörur. Nýjustu vörurnar fagna litríkum og róttækum tíðaranda áttunda og níunda áratugarins en eru nú í nýrri útfærslu til að mæta nútímakröfum um efnivið og smíði.
IKEA fagnar nú áttatíu árum og af því tilefni hefur verið ákveðið að endurvekja nokkrar vinsælar og þekktar vörur. Nýjustu vörurnar fagna litríkum og róttækum tíðaranda áttunda og níunda áratugarins en eru nú í nýrri útfærslu til að mæta nútímakröfum um efnivið og smíði. Stellan Herner

Sænski húsgagnaframleiðandinn IKEA fagnar áttatíu árum og í tilefni stórafmælisins hefur nokkrum vinsælum og þekktum vörum verið gefið nýtt líf. 

„Við hjá IKEA erum stolt af hönnun okkar og sögu og því blásum við nýju lífi í vinsæla hönnun úr fortíð okkar. Í Nytillverkad-línunni mætir sígild hönnun kröfum nútímans,“ segir Johan Ejdemo, yfirmaður hönnunar hjá IKEA í Svíþjóð. 

Litríkur lofsöngur til áttunda og níunda áratugarins

Í október snúa aftur mynstur og vörur eftir hönnuði á borð við Niels Gammelgaard, Bent Gantzel-Boysen, Sven Fristedt og Inez Svensson. Nýjustu vörurnar fagna litríkum og róttækum tíðaranda áttunda og níunda áratugarins en eru nú í nýrri útfærslu til að mæta nútímakröfum um efnivið og smíði.

„Ég vildi að vörurnar gætu staðið einar og sér, eins og skúlptúrar sem allir taka eftir,“ segir Karin Gustavsson, listrænn stjórnandi Nytillverkad-línunnar.

HOLMSJÖ kollurinn er mínímalískur frá árinu 1963.IKEA

Ný klassísk hönnun

Í Nytillverkad-línunni eru þekktar hönnunarvörur settar í litríkan og nútímalegan búning. Þar af má nefna SKÅLBODA-hægindastólinn og JÄRLÅSA-hliðarborðið eftir Niels Gammelgaard. JÄRLÅSA-hliðarborð á hjólum birtist fyrst í vörulista IKEA árið 1984 sem HOFF en nú er búið að styrkja það og bæta. 

SKÅLBODA-hægindastóllinn á rætur að rekja til JÄRPEN-hægindastólsins sem Gammelgaard hannaði fyrir IKEA snemma á níunda áratugnum. Hönnunin á honum þótti afar nýstárleg þar sem götin voru stækkuð til að draga úr hráefnisnotkun. 

JÄRPEN stóllinn var þægilegur og flottur en á hagstæðu verði og því fljótt vinsæll meðal unga fólksins.
Hönnunin er einstökt og litrík.Stellan Herner
CYLINDER kertastjarkarnir komu fyrst á markað árið 1982.Stell­an Herner

„Ef hönnunin er góð og komandi kynslóð finnst hún flott þá hefur okkur tekist ætlunarverkið. Okkur heppnaðist það með þessum stól og ég er einstaklega stoltur af því nú fjörutíu árum síðar,“ segir Niels Gammelgaard, hönnuður.

Í af­mæl­is­lín­unni Nytill­verkad lín­an er einnig SVE­DJENÄVA, sem er áber­andi og skemmti­legt mynstur.Stellan Herner

Nytillverkad línan færir okkur einnig SVEDJENÄVA, sem er áberandi og skemmtilegt mynstur eftir Sven Fristedt og vinsæla NICKFIBBLA mynstrið eftir Inez Svensson á púðaverum og metravöru.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×