Mbappé og Hakimi kláruðu Dortmund

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
PSG hóf Meistaradeildina á sigri.
PSG hóf Meistaradeildina á sigri. Rico Brouwer/Soccrates/Getty Images

Kylian Mbappé og Achraf Hakimi sáu um markaskorun Paris Saint-Germain er liðið vann 2-0 sigur gegn Dortmund í fyrstu umferð riðlakeppninnar í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu í kvöld.

Franska stórstjarnan Kylian Mbappé kom heimamönnum yfir með marki úr vítaspyrnu snemma í síðari hálfleik eftir að Niklas Süle handlék knöttinn innan vítateigs.

Það var svo Achraf Hakimi sem tvöfaldaði forystu PSG á 58. mínútu og tryggði liðinu um leið sigurinn. Niðurstaðan 2-0 sigur PSG sem byrjar riðlakeppnina því á sigri og er með þrjú stig á toppi F-riðils, en Newcastle og AC Milan gerðu markalaust jafntefli fyrr í kvöld og eru því bæði með eitt stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira