Erlent

Hægriflokkurinn með meirihluta í Noregi

Lovísa Arnardóttir skrifar
Erna Solberg, formaður Høyre, á kosningavöku flokksins í Osló í gær. Flokkurinn vann meirihluta víða í Noregi.
Erna Solberg, formaður Høyre, á kosningavöku flokksins í Osló í gær. Flokkurinn vann meirihluta víða í Noregi. Vísir/EPA

Hægriflokkurinn Høyre hlaut víða meirihluta í sveitarstjórnarkosningum í Noregi í gær. Nærri 100 ár eru síðan Høyre var stærsti flokkurinn á sveitarstjórnarstiginu. 

Hægriflokkurinn Høyre vann mikinn sigur í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fóru í Noregi í nótt en flokkurinn hlaut tæplega 26 prósent atkvæða á landsvísu og Verkamannaflokkurinn tæplega 22 prósent.

Til samanburðar hlaut Höyre tuttugu prósent atkvæða í síðustu sveitarstjórnarkosningum og Verkamannaflokkurinn tæplega 25 prósent. Þetta er í fyrsta sinn frá árinu 1924 sem Hoyre er stærsti flokkurinn í kosningum, en það hefur alla jafna verið hlutskipti Verkamannaflokksins.

Meirihlutann í Osló halda nú flokkarnir Høyre, KrF, FRP og Venstre en það eru einnig flokkarnir sem Høyre sagðist vilja vinna með eftir kosningar í höfuðborginni. Høyre hlaut 32,6 prósent atkvæða og bætti við sig sjö prósentustigum frá seinustu kosningum. KrF hlaut 1,7 prósent atkvæða, FRP hlaut sex prósent og Venstre níu prósent. Samanlagt er það 46,3 prósent.

„Það eru miklar tilfinningar í dag,“ segir Raymond Johansen í viðtali við norska miðilinn NRK sem nú lætur af störfum sem borgarstjóri Oslóar en hann er oddviti Verkamannaflokksins og hefur setið sem borgarstjóri síðan 2015.

Í heildina á litið vann Verkamannaflokkurinn meirihluta í 121 kommúnu en Høyre meirihluta í 83. Ef litið er til fylkja vann Høyre meirihluta í sjö af tólf en Verkamannaflokkurinn í fimm og Fremskrittspartiet meirihluta í einu. Nánar hér á vef NRK. 

Tveir nýir borgarstjórar

Í viðtalinu kemur fram að hann sé mjög vonsvikinn með niðurstöðurnar. Fleiri hafa tekið undir það en haft er eftir leiðtoga LO, Peggy Følsvik, á vef Aftenposten að hún sé mjög vonsvikin en að nú komi í ljós hvort að raunverulega sé hægt að uppfylla loforð sem hægriflokkarnir hafa sett fram.

Líklegt er að Eirik Lae Solberg í Hægriflokknum taki við af Johansen sem borgarstjóri og Anna Lindboe sem hinn borgarstjóri borgarinnar og tekur við af Marianne Borgen. Tveir borgarstjórar eru í Osló. Annar stýrir borgarstjórn og hinn sinnir formlegum athöfnum og hefur engin pólitísk völd.

„Markmið viðræðna þessar flokka er að búa Osló undir nýja borgarstjórn og nýja pólitíska stefnu. Og að Anne Lindboe sé kjörin borgarstjóri,“ sagði Lae Solberg í gær er kemur fram í frétt NRK.

Jonas Gahr Störe, forsætisráðherra og leiðtogi Verkamannaflokksins, fylgist hér með niðurstöðum í gærkvöldi. Vísir/EPA

Jonas Gahr Störe, forsætisráðherra og leiðtogi Verkamannaflokksins, sagði í gærkvöldi að niðurstaðan væri á engan hátt eins og hann hafði vonast eftir. Flokksmenn hafi vitað að verkefnið væri erfitt og að niðurstaðan væri á engan hátt ásættanleg.


Tengdar fréttir

Treystir hópnum og vonar að ferskir fætur geri gæfu­muninn

„Við getum ekki útilokað neitt fyrr en það er ómögulegt,“ sagði landsliðsþjálfarinn Åge Hareide aðspurður hvort möguleikar Íslands á að ná 2. sæti í undankeppni EM 2024 í knattspyrnu væru úr sögunni. Hann reiknar með að gera breytingar fyrir leik kvöldsins gegn Bosníu og Hersegóvínu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×