Viðskipti innlent

Voda­fone Sport í loftið

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Sesselía Birgisdóttir, framkvæmdastjóri hjá Vodafone.
Sesselía Birgisdóttir, framkvæmdastjóri hjá Vodafone.

Ný línu­leg sjón­varps­rás Sýnar sem er hluti af samningum við Viaplay hefur fengið nafnið Voda­fone Sport. Þetta kemur fram í til­kynningu.

Eins og fram hefur komið hafa Viaplay og Sýn gert með sér tíma­móta sam­starfs­samning. Hluti af samningum er ný línu­leg sjón­varps­rás og einka­réttur Sýnar til að selja Viaplay vörur í á­skriftar­pökkum Voda­fone og Stöð 2.

Nýja línu­lega sjón­varps­rás Sýnar hefur fengið nafnið Voda­fone Sport. Rásina má finna á rás 14 á mynd­lyklum Voda­fone. Í til­kynningu er full­yrt að á rásinni verði besta í­þrótta­efnið frá Viaplay Sport og það sýnt hverju sinni í há­marks gæðum. Rásin er að­gengi­leg við­skipta­vinum Voda­fone og Stöðvar 2 Sport og verður inni­falin í á­skriftar­pökkum Voda­fone og Stöð 2 þar sem að Viaplay To­ta­l er inni­falið.

Allt í einum pakka

Frá og með deginum í dag verður Viaplay að­gengi­legt í gegnum á­skriftar­pakka Voda­fone og Stöð 2. Í á­skriftar­pökkunum má finna mis­munandi sam­setningu á fjar­skiptum, skemmtun og sporti á betra verði. Við­skipta­vinir ein­fald­lega velja hvaða pakkar henta þeirra þörfum.

Með einni og sömu á­skriftinni verður nú hægt að horfa á alla Meistara­deildina, Evrópu­deildina, Sam­bands­deildina, Cara­bao cup, For­múlu 1, Bestu deildina, Subway deildina, NBA, NFL, NHL og Masters og marga aðra við­burði á­samt Stöð 2 sport. Allt á einum stað.

Nýja stöðin hefur fengið nafn.

Nú­verandi við­skipta­vinir Voda­fone sem nú þegar eru með á­skriftar­pakka fá sendar raf­rænar leið­beiningar á næstu dögum um hvaða á­skriftar­leiðir Viaplay séu inni­faldar í þeirra pakka og hvernig þeir virkja á­skriftina að Viaplay. Einnig eru skýrar leið­beiningar til þeirra við­skipta­vina sem þegar eru í við­skiptum við Viaplay um hvernig þeir eigi að bera sig að vilji þeir breyta á­skriftinni.

„Það er okkur mikið á­nægju efni að kynna við­skipta­vinum okkar nýja línu­lega sjón­varps­rás Voda­fone Sport þar sem allt það besta frá Viaplay Sport verður sýnt hverju sinni. Við hjá Voda­fone leggjum á­herslu á að bjóða við­skipta­vinum okkar fjöl­breytt fram­boð af inn­lendri og er­lendri af­þreyingu og bjóðum nú við­skipta­vinum upp enn frekara val í af­þreyingu með sam­starfinu við Viaplay. Voda­fone hefur ný­lega kynnt nýja á­skriftar­pakka þar sem að hægt er að fá há­gæða net, far­síma, skemmtun Stöðvar 2, Sport frá Viaplay og Stöð 2 Sport, allt á einum stað í mánaðar­legri á­skrift. Þetta gerist ekki ein­faldara eða skemmti­legra,“ segir Sesselía Birgis­dóttir fram­kvæmda­stjóri hjá Voda­fone.

Vísir er í eigu Sýnar.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×