Sport

Með tækni­væddustu þvag­skálar í í­þrótta­heiminum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Travon Walker og félagar í Jacksonville Jaguars sjást hér við æfingar í bandaríska sumarhitanum á Flórída en félagið fylgist mjög náið með heilsu þeirra.
Travon Walker og félagar í Jacksonville Jaguars sjást hér við æfingar í bandaríska sumarhitanum á Flórída en félagið fylgist mjög náið með heilsu þeirra. Getty/James Gilbert

NFL-liðin eru að alltaf að leita leiða til að ná einhverju forskoti inn á vellinum og mörg tilbúin að prófa ýmislegt.

Forskotið fæst ekki aðeins með að finna réttu leikmennina og réttu þjálfarana. Það snýst líka um að hugsa sem best um sína leikmenn og gera sér nákvæmlega grein fyrir því hvort þeir séu á réttri leið eða þurfa á einhverri aðstoð að halda.

Flórída liðið Jacksonville Jaguars mælir sína leikmenn þannig í bak og fyrir og leikmennirnir eru ekki einu sinni hólpnir inn á salerninu.

Nýjar þvagskálar á æfingasvæði Jaguars eru með sérstakan nema sem mælir það hvort leikmennirnir séu að drekka nógu mikið. Þetta eru tæknivæddistu þvagskálar í íþróttaheiminum.

Þegar þeir pissa á mælinn þá fá þeir grænt, gult eða rautt ljós.

Ef það er grænt þá er allt í góðu, ef það er gult þá þurfa þeir að drekka meira en ef þeir fá rautt ljós þá eru þeir væntanlega fljótlega á leiðinni á sjúkrahús.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×