Erlent

Banna teiknimyndina um Bósa Ljósár

Jóhann Hlíðar Harðarson skrifar
Bósa Ljósári haldið hátt á lofti í hinsegin göngu í Valencia á Spáni.
Bósa Ljósári haldið hátt á lofti í hinsegin göngu í Valencia á Spáni. Xisco Navarro/Getty Images

Nýr meirihluti hægri flokkanna á Spáni hefur bannað sýningu myndarinnar um Bósa ljósár í litlum bæ á Norður-Spáni. Í myndinni sjást tvær konur kyssast eitt augnablik.

VOX stendur við það sem hann lofar

Það er ekki hægt að segja að öfgahægriflokkurinn VOX hér á Spáni standi ekki við það sem hann lofar. Hann hefur lofað því fyrir þingkosningarnar eftir tvær vikur að komist hann í ríkisstjórn þá verði lögum sem auki jafnrétti kynjanna og réttindi hinsegin fólks snúið við og lög um þungunarrof felld úr gildi.

Og nú hefur flokkurinn gefið kjósendum smjörþefinn af því sem koma skal. VOX og Lýðflokkurinn, sem er borgaralegur hægri flokkur og stærsti flokkur landsins samkvæmt nýjum skoðanakönnunum, mynda nýjan meirihluta í litlum bæ á norðurströnd Spánar, Santa Cruz de Bezana. Saman felldu þeir Sósíalistaflokkinn sem hafði skipulagt sumarbíó bæjarins, sem eru kvikmyndasýningar á föstudagskvöldum undir heiðum sumarhimni á aðaltorgi bæjarins. Sumarbíóið átti að byrja í gærkvöld, og fyrsta mynd sumarsins átti að vera teiknimynd Pixars um Bósa ljósár, sem frumsýnd var í fyrrasumar. Fyrir þá sem ekki muna þá er Bósi ljósár geimfari sem rekur upphaf sitt til Toy Story myndanna.

Teiknimyndin um Bósa ljósár hefur nú verið bönnuð á bænum Santa Cruz de Bezana á Norður-Spáni en öfgahægriflokkurinn VOX myndar meirihluta þar ásamt Lýðflokknum eftir sveitarstjórnarkosningarnar á Spáni í lok maí.Public Domain

Út með Bósa, inn með slæmu strákana

En núna fer VOX með menningarmál bæjarins og þar var brugðist hratt við sumardagskránni, Ljósári var kippt út og þess í stað var teiknimynd Dreamworks, The Bad Guys, sýnd í gærkvöldi. Nokkur umræða varð um myndina Ljósár þegar hún var frumsýnd í fyrra og hún var bönnuð í a.m.k. 16 múslimalöndum í Austurlöndum nær. Ástæðan var sú að tvær konur sjást kyssast eitt örstutt augnablik. Og einmitt vegna þessa olli hún þó nokkru fjaðrafoki í Bandaríkjunum þar sem bókabann er t.a.m. stundað af miklum þrótti þessi misserin.

Létu líka fjarlægja Regnbogafánann

Myndin hefur þó hvergi í Evrópu verið bönnuð, þar til núna að henni er kippt út af sumardagskrá Santa Cruz de Bezana. Þetta er ekki eina atlagan að hinsegin fólki sem VOX hefur lagt í síðan flokkurinn komst í meirihluta í bænum. Eitt fyrsta verk hans var að láta fjarlægja Regnbogafána hinsegin fólks af ráðhúsi bæjarins þar sem hann hafði lengi fengið að blakta óáreittur.

Enginn úr röðum hinna ráðandi hægri flokka hefur viljað tjá sig um málið við spænska fjölmiðla.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×