Samstarf

Húsa­smiðjan fyrsta rekjan­leika­vottaða bygginga­vöru­keðjan á Ís­landi

Húsasmiðjan
„Það er mjög mikilvægt fyrir Húsasmiðjuna að fá FSC vottun, þar sem við getum núna tryggt rekjanleika timbursins allt frá framleiðanda til viðskiptavinarins,“ segir Emilía Borþórsdóttir, verkefnastjóri umhverfis- og samfélagsmála hjá Húsasmiðjunni.
„Það er mjög mikilvægt fyrir Húsasmiðjuna að fá FSC vottun, þar sem við getum núna tryggt rekjanleika timbursins allt frá framleiðanda til viðskiptavinarins,“ segir Emilía Borþórsdóttir, verkefnastjóri umhverfis- og samfélagsmála hjá Húsasmiðjunni.

Húsasmiðjan hefur hlotið FSC og PEFC rekjanleikavottun fyrir sölu á timbri fyrir umhverfisvottuð verkefni og er fyrsta byggingavörukeðjan á Íslandi með slíka vottun.

FSC (Forest Stewardship Council) og PEFC (Programme for the Endorsement of Forest Certification) eru alþjóðleg vottunarkerfi sem tryggja sjálfbærni og rekjanleika timburs fyrir vistvæn byggingaverkefni og er Húsasmiðjan er nú formlega vottaður söluaðili. Vottað timbur er skilyrði í flestar vistvænar byggingaframkvæmdir.

FSC og PEFC vottanir eru ekki rekin í hagnaðarskyni og tryggja að timbrið komi úr sjálfbærum skógum sem haldið er við með plöntun fleiri trjáa en þeirra sem nýtt eru t.d. sem byggingarefni. FSC og PEFC vottanir vernda líf og vistkerfi skóga sem og samfélagsins í heild. Þannig er tryggt m.a. að hugað sé að réttindum, þjálfun, launakjörum og öryggi starfsfólks sem starfar við nýtingu og ræktun skógana.

„Það er mjög mikilvægt fyrir Húsasmiðjuna að fá FSC vottun, þar sem við getum núna tryggt rekjanleika timbursins allt frá framleiðanda til viðskiptavinarins. Árið 2003 var tekin sú ákvörðun að beina viðskiptum okkar frekar til framleiðenda með FSC og PEFC vottun á timbri. Við höfum því í mörg ár nánast eingöngu selt timbur frá vottuðum framleiðendum. Við vildum stíga skrefið til fulls með vottun sem söluaðili og tryggja þannig viðskiptavinum rekjanleika alla leið fyrir byggingaverkefni fyrst byggingavörukeðja á Íslandi,” segir Emilía Borgþórsdóttir, verkefnastjóri umhverfis- og samfélagsmála hjá Húsasmiðjunni.

Nánari upplýsingar veitir Emilía Borgþórsdóttir, verkefnastjóri umhverfis-og samfélagsmála hjá Húsasmiðjunni. Sími: 525-3000 og í tölvupóstinum emilia@husa.is.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×