Erlent

Bandaríkjamenn og Kínverjar reyna að draga úr spennu

Heimir Már Pétursson skrifar
Antony Blinken utanríkisráðherra heilsar upp á Xi Jinping forseta Kína í dag.
Antony Blinken utanríkisráðherra heilsar upp á Xi Jinping forseta Kína í dag. AP/Leah Millis

Antony Blinken utanríkisráðherra Bandaríkjanna kom í tveggja daga heimsókn til Kína í gær og fundaði með Qin Gang utanríkisráðherra og Wang Yi sem fer fyrir utanríkismálum í stjórnmálaráði Kínverska kommúnistaflokksins.

Blinken er æðsti embættismaður Bandaríkjanna til að heimsækja Kína frá því Joe Biden tók við forsetaembætti. Markmiðið með fundinum er að reyna að slaka á vaxandi spennu ríkjanna á fjölmörgum sviðum, eins og á viðskiptasviðinu, varðandi stöðu Tævan og afstöðu Kína til innrásar Rússa í Úkraínu.

Antony Blinken utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir mikilvægt að slaka á spennu í samskiptum Bandaríkjanna og Kína. AP/Leah Milli

Í dag fundaði Blinken með Xi Jinping forseta Kína.

„Á öllum fundum okkar lagði ég áherslu á að bein tjáskipti ríkjanna og viðvarandi samband á æðstu stigum kæmu í veg fyrir ágreining og tryggðu að samkeppni ylli ekki ágreiningi. Ég heyrði það sama frá kínverskum starfsbræðrum mínum. Við erum sammála um að auka stöðugleika samskipta okkar,“ sagði Blinken meðal annars eftir fund hans með forseta Kína í dag.


Tengdar fréttir

Segir Xi hafa heitið því að senda Rússum ekki vopn

Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fór í dag á fund Xi Jinping, forseta Kína, en eftir fundinn hétu þeir því að bæta samskipti ríkjanna. Þau hafa versnað verulega á undanförnum árum.

Reynir að lægja öldurnar í heim­sókn til Kína

Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er mættur til Kína í opinbera heimsókn sem er ætlað að lægja öldurnar í samskiptum þjóðanna. Þetta er í fyrsta skipti sem bandarískur utanríkisráðherra heimsækir Kína í fimm ár.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×