Fótbolti

Þreyttur Pep sendi UEFA og FIFA tóninn eftir Meistara­deildar­sigurinn

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Pep og sá eftirsótti.
Pep og sá eftirsótti. Ian MacNicol/Getty Images

„Þreyttur, rólegur og ánægður. Það er svo erfitt að vinna þessa keppni,“ sagði Evrópumeistarinn Pep Guardiola þegar hann ræddi við blaðamenn eftir Meistaradeildarsigur Manchester City í kvöld.

Lærisveinar Guardiola unnu 1-0 sigur á Inter frá Mílanó í úrslitum Meistaradeildarinnar fyrr í kvöld. Rodri skoraði sigurmarkið sem tryggði félaginu sinn fyrsta Evrópumeistaratitil og fullkomnaði um leið þrennuna.

Pep er þar með eini þjálfari sögunnar til að vinna þrennuna tvisvar en hann gerði það einnig með Barcelona. Hann segir þolinmæði vera dyggð og að lið verði að vera heppin til að vinna þennan eftirsótta titil.

„Þeir eru mjög góðir. Í hálfleik sagði ég að við þyrftum að vera þolinmoðir. Maður verður að hafa heppnina með sér í liði.“

„Þetta var skrifað í skýin,“ bætti hann við.

„Við vorum ekki upp á okkar besta. Eftir HM í Katar tók liðið mikið framfaraskref og við spiluðum vel. Við sýndum ekki slíka frammistöðu í kvöld.“

„Ég hef enga orku til að hugsa um næstu leiktíð. Við þurfum frí, tímabilið er of langt.“

„Okkar leikmenn þurfa að fara í landsliðsverkefni. UEFA og FIFA, hugsið um þetta. Ensku úrvalsdeildinni lauk fyrir 2-3 vikum en leikmenn eru nú þegar að koma til baka. Þetta er of mikið. Við munum byrja frá núlli á næstu leiktíð.“

„Við munum fagna á hótelinu með ættingjum og vinum. Á mánudag er skrúðganga í Manchester,“ sagði Pep Guardiola að lokum.


Tengdar fréttir

Pep sá fyrsti í sögunni

Manchester City vann Inter frá Mílanó í úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Þar með unnu lærisveinar Pep Guardiola þrennuna svokölluðu. Þeir eru Englands-, FA bikar- og Evrópumeistarar. Er þetta önnur þrennan sem Pep vinnur á ferli sínum sem þjálfari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×