Sport

NFL-liðin eltast við draumadrátt í beinni á Stöð 2 Sport

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sauce Gardner, Ickey Ekwonu, Nakobe Dean, Jordan Davis, Charles Cross og Matt Corral mættu allir á nýliðavalið í fyrra en þangað er boðið eftirsóttustu leikmönnum.
Sauce Gardner, Ickey Ekwonu, Nakobe Dean, Jordan Davis, Charles Cross og Matt Corral mættu allir á nýliðavalið í fyrra en þangað er boðið eftirsóttustu leikmönnum. Getty/Kevin Sabitus

Það gengur mikið á í NFL-deildinni næstu daga þrátt fyrir að enginn leikur hafi farið fram síðan í byrjun febrúar og að fyrsta umferð deildarkeppninnar hefjist ekki fyrr en eftir rúma fjóra mánuði.

Ástæðan er að einn af stóru dögunum á NFL-dagatalinu er nýliðavalið þar sem liðin þrjátíu í deildinni dreymir öll um að finna sér leikmanninn sem getur breytt öllu fyrir framtíð félagsins.

Það hefur margoft sýnt sig í gegnum tíðina að happafengur í nýliðavalinu getur fært félagi nýtt líf í deildinni og súperstjörnurnar eru fljótar að breyta gengi liða sinna.

Liðin þurfa því að vanda til verka en nýliðavalið er margra daga verkefni þar sem fyrsta umferðin fer fram á fimmtudegi, önnur umferð á föstudegi og þriðja umferð á laugardegi.

Stöð 2 Sport hefur fylgst vel með NFL-deildinni síðustu áratugi og mun nú sýna frá öllum þremur dögum nýliðavalsins.

Í kvöld fer fram fyrsta umferðina og hefst útsendingin á miðnætti á Stöð 2 Sport 2.

Það er mikil spenna fyrir þessu nýliðavali ekki síst hjá liðunum sem eru að velja fyrst og eigu mestu möguleikana á því að finna alvöru stórstjörnu. Svo má einnig búast við einhverjum leikmannaskiptum í kringum nýliðavalið sem eykur enn á spenninginn.

Carolina Panthers velur fyrst en svo kemur að Houston Texans, Arizona Cardinals og Indianapolis Colts sem er með fjórða valrétt.

Detroit Lions, Las Vegas Raiders, Atlanta Falcons, Chicago Bears, Philadelphia Eaglesog Tennessee Titans velja síðan áður en það kemur aftur að Texans sem nýta sér þá valrétt sem þeir fengu í skiptum við Cleveland Browns.

Miklar líkur eru taldar leikstjórnendurnir Bryce Young (frá Alabama) og CJ Stroud (frá Ohio State) verði valdir fyrstir en þá þykir einnig spennandi Anthony Richardson, leikstjórnandinn úr Florida skólanum, sem er mikil íþróttamaður en hann er þó enn mjög hrár sem leikmaður. Will Levis (frá Kentucky) þykir líka öflugur leikstjórnandi og gæti farið snemma.

Varnarmennirnir Will Anderson (frá Alabama), Tyree Wilson (Texas Tech) og Jalen Carter (frá Georgíu) þykja líka líklegir að verði valdir snemma af liðum sem þurfa að laga hjá sér varnarleikinn. Það nefna menn sérstaklega lið eins og Arizona Cardinals, Seattle Seahawks og Detroit Lions. Carter er ef til vill besti leikmaðurinn af þeim en hann hefur verið í vandræðum utan vallar.

Sérfræðingar eru búnir að tala og spá fyrir um röð leikmanna undanfarnar vikur en í kvöld kemur sannleikurinn í ljós og það í beinni á Stöð 2 Sport 2.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×