Viðskipti innlent

85 milljóna króna gjaldþrot Fellabakarís

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Fellabakarí var starfrækt um árabil í félaginu Fellabakstur ehf. 
Fellabakarí var starfrækt um árabil í félaginu Fellabakstur ehf.  Visit Austurland

Engar eignir fundust í þrotabúi Fellabaksturs ehf. sem rak Fellabakarí á Egilsstöðum. Kröfur í búið námu tæplega 85 milljónum króna. Þetta kemur fram í Lögbirtingablaðinu í dag en félagið var úrskurðað gjaldþrota í janúar.

Bakaríið var það langstærsta á Austurlandi um árabil og seldi verslunum á Austfjörðum brauð auk þess að halda úti hefðbundinni bakarísstarfsemi. 

Ljóst var að reksturinn var í molum þegar viðskiptavinir komu að lokuðum dyrum í upphafi árs. Mánuðurinn var rétt hálfnaður þegar búið var að úrskurða félagið gjaldþrota. Það var stofnað árið 1968 en Þráinn Lárusson, veitingamaður á Héraði, keypti reksturinn árið 2021. 

Þráinn sagði í viðtali við Austurfrétt í janúar hafa verið meðvitaður um rekstrarvandann við kaupin. Endursala á vörum til verslana hefði reynst sérstaklega erfiður. Myllan og bakarí Gæðabaksturs standi lang best og nánast undir öllu brauði sem selt sé í verslunum. Þeir aðilar séu miklu tæknivæddari. 

Ég hef prófað ýmislegt í mínum rekstri og stundum þegar gengur vel telur maður sig ósnertanlegan. Við töldum að með öðrum rekstri, sem notar mikið brauð, væri hægt að reka bakaríið. Við vorum með matvælaframleiðslu sem við færðum inn í bakaríið til að samnýta ferðir og tæki. Þar vonuðum við að heimafólk keypti okkar vöru ef hún væri aðeins vandaðri frekar en það sem flutt væri að. Við hættum þessari framleiðslu nú í febrúar þegar við sáum að hún gengi ekki upp. Kannski var maður eins og Don Kíkóti að berjast við vindmyllurnar – að taka við deygjandi stétt til að reyna að blása í hana lífi,“ sagði Þráinn í viðtali við Austurfrétt í janúar.

Um var að ræða eina bakaríið á Héraði. Eignir félagsins voru auglýstar til sölu í janúar en enginn kaupandi fannst.


Tengdar fréttir





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×