Fótbolti

Háttvísiverðlaunin afhent á nærri því ólöglegu ársþingi KSÍ

Smári Jökull Jónsson skrifar
Litlu munaði að ársþing KSÍ yrði ólöglegt vegna þess hve fáir fulltrúar væru mættir til þings.
Litlu munaði að ársþing KSÍ yrði ólöglegt vegna þess hve fáir fulltrúar væru mættir til þings. Vísir/Getty

Drago stytturnar, sem venjulega eru veittar prúðustu liðunum í tveimur efstu deildum karla í knattspyrnu, voru í dag afhentar en sú breyting hefur verið gerð að nú fá prúðustu liðin í efstu deildum karla og kvenna viðurkenninguna.

Ársþing KSÍ fer þessa stundina fram á Ísafirði en samkvæmt mbl.is munaði litlu að þingið yrði ólöglegt. 70 af 138 fulltrúm voru mættir en helming fulltrúa þarf svo þingið teljist löglegt.

Drago stytturnar hafa verið afhentar um árabil til þeirra liða í tveimur efstu deildum karla sem sýna mesta háttvísi. KSÍ samþykkti á fundi sínum á föstudag að hér eftir yrðu stytturnar afhentar þeim tveimur liðum í efstu deildum karla og kvenna sem sýna mesta háttvísi.

Fyrir tímabilið 2022 fær ÍBV Drago styttuna í karlaflokki en Stjarnan í kvennaflokki.

Hægt er að fylgjast með þinginu í beinu streymi hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×