Fótbolti

For­seti spænsku deildarinnar vill að for­seti Barcelona segi af sér

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Javier Tebas, forseti La Liga.
Javier Tebas, forseti La Liga. EPA-EFE/OLIVIER HOSLET

Þó það gangi loks vel innan vallar hjá Barcelona þá hefur enn einn skandallinn bankað upp á. Hefur Javier Tebas, forseti La Liga, sagt opinberlega að Joan Laporta, forseti Barcelona, ætti að segja af sér.

Þannig er mál með vexti að nýverið komst í fréttirnar að Barcelona hefði greitt fyrirtæki í eigu José María Enríquez Negreira allt að 1,4 milljónir evra [217 milljónir íslenskra króna] frá árunum 2016 til 2018. Téður José María var á þessum tíma varaformaður spænsku dómaranefndarinnar.

Loks þegar Börsungar virtust vera að finna taktinn innan vallar eftir döpur misseri þá kemur þetta mál upp á yfirborðið. La Liga, spænska úrvalsdeildin, getur ekkert aðhafst í málinu að svo stöddu vegna regluverks spænskrar knattspyrnu en Tebas vill einfaldlega að Laporta segi af sér nema forseti Börsunga geti útskýrt þessar 33 greiðslur upp á 217 milljónir íslenskra króna.

Hann tekur fram að hann sé búinn að hafa samband við ríkissaksóknara og mun heyra bæði í UEFA og FIFA sé þess þörf. Þá sló Tebas því upp að mögulega væri um að ræða alvarlegra mál heldur en það sem Juventus er að glíma við á Ítalíu. Voru 15 stig dregin af Juventus á dögunum.

Barcelona sjálft hefur hafið rannsókn á málinu en ekki er ljóst hvenær niðurstöðu er að vænta úr því. Tebas hefur að sama skapi sagt að Barcelona fái ekki að rannsaka málið eitt og óstudd. Á meðan sú rannsókn fer fram halda lærisveinar Xavi áfram að reyna endurheimta spænska meistaratitilinn en liðið er sem stendur á toppi La Liga.

Joan Laporta, forseti Barcelona.EPA-EFE/Alejandro Garcia



Fleiri fréttir

Sjá meira


×