Fótbolti

Sjáðu markið | Markvörður á Ítalíu skoraði frá sínum eigin vítateig

Atli Arason skrifar
Riccardo Gagno, markvörður Modena.
Riccardo Gagno, markvörður Modena. Modena FC

Riccardo Gagno, markvörður Modena, skoraði sigurmark með spyrnu rétt fyrir utan eigin vítateig á 91. mínútu í 2-1 sigri Modena á Imolese í ítölsku C-deildinni í knattspyrnu.

Gagno var sennilega ekki að reyna að skora úr þessari stöðu en Gianmaria Rossi, markvörður Imolese virðist eitthvað hafa misreiknað flugið á boltanum. Markið má sjá hér að neðan.

Mark Gagno er afar mikilvægt fyrir Modena þar sem stigin þrjú gera að verkum að liðið er efst í C-deildinni með fjögurra stiga forystu þegar tveir leikir eru eftir. Gagno var skiljanlega mikið fagnað af öllum liðsfélögum sínum þegar boltinn endaði í netinu.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×