Fótbolti

Bayern-stjarnan snýr aftur mánuðum eftir veirusmit

Sindri Sverrisson skrifar
Alphonso Davies fagnar marki með samherjum sínum í Bayern í desember. Hann hefur ekki getað spilað með liðinu síðan í jólamánuðinum.
Alphonso Davies fagnar marki með samherjum sínum í Bayern í desember. Hann hefur ekki getað spilað með liðinu síðan í jólamánuðinum. Getty/Bernd Thissen

Hinn 21 árs gamli Alphonso Davies mætti aftur til æfinga hjá knattspyrnuliði Bayern München í gær eftir að hafa verið frá keppni í þrjá mánuði. Mögulegt er að hann verði með liðinu í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Bayern greindi frá því 5. janúar að Davies, sem var fullbólusettur, hefði smitast af kórónuveirunni. Við læknisskoðun í kjölfarið var Davies greindur með væga hjartavöðvabólgu sem veirusýkingin getur valdið.

Davies hefur því ekki spilað með Bayern eftir jólafríið, eða síðan 17. desember, en mætti til æfinga með bæði hlaupa- takkaskó í gær, á séræfingar með líkamsræktarþjálfara Bayern. Bæjarar munu þó fara sér að engu óðslega.

„Hjartavöðvabólgan er farin. Bataferlið virðist hafa heppnast eins vel og hugsast gæti,“ sagði Julian Nagelsmann, þjálfari Bayern, eftir 1-1 jafnteflið við Hoffenheim í þýsku 1. deildinni um helgina.

Nagelsmann sagði að Davies fengi sinn tíma til að jafna sig. „Ef allt gengur rosalega vel þá eru þrjár eða fjórar vikur í viðbót í hann,“ sagði Nagelsmann.

Bayern er komið í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu en það skýrist á föstudaginn hverjir mótherjar liðsins verða þar. Leikirnir verða 5. eða 6. apríl og 12. eða 13. apríl, og því mögulegt að Davies verði þá klár í slaginn.

Þrátt fyrir tvö jafntefli í röð er Bayern með sjö stiga forskot á Dortmund á toppi þýsku 1. deildarinnar en Dortmund á þó leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×