Innherji

Íslandsbanki á von á 700 milljónum sem hafa legið óhreyfðar vegna dómsmáls

Þorsteinn Friðrik Halldórsson skrifar
Íslandsbanki hafði afskrifað fjárhæðina en nú er útlit fyrir að hún fáist greidd.
Íslandsbanki hafði afskrifað fjárhæðina en nú er útlit fyrir að hún fáist greidd.

Íslandsbanki getur átt von á því að fá greiddar 676 milljóna króna, sem hafa um árabil legið óhreyfðar á bankareikningi á meðan óvissa var um niðurstöðu í dómsmáli, eftir nýlegan úrskurð Landsréttar í málinu.

Í byrjun árs 2019 komst Hæstiréttur að niðurstöðu í máli sem varðaði fjárkröfu Íslandsbanka á hendur Héðinsreit ehf. en félagið naut veðrétt­inda í fast­eign­inni Vest­ur­götu 64 í Reykja­vík. Fasteignin var seld á nauðungaruppboði að kröfu Reykjavíkurborgar vegna vangoldinna fasteignagjalda.

Byr sparisjóður hafði veitt Héðinsreit lán á grundvelli fjármögnunarsamnings gegn veðrétti í fasteigninni og var lánið hluti af því lánasafni sem Íslandsbanki keypti af Byr haustið 2011. Lýsti bankinn því kröfu sinni á nauðungaruppboðinu

Niðurstaða Hæstaréttar var sú að Íslandsbanki fengi 676 milljónir króna greiðslu vegna úthlutunar á söluverði fasteignarinnar en upphæðin skyldi geymd á bankareikningi þar til niðurstaða fengist í öðru tengu dómsmáli.

Héðinsreitur hafði fengið skaðabótaskyldu vegna riftunar Byrs á fjármögnunarsamninginum viðurkennda fyrir dómi og taldi félagið sig eiga kröfu til skuldajafnaðar við kröfu Íslandsbanka.

Fyrir viku síðan kvað Landsréttur upp úrskurð í málinu þar sem hann sneri við fyrri dómi héraðsdóms og ef sá úrskurður fær að standa óbreyttur er ekkert því til fyrirstöðu að Íslandsbanki fái fjármunina greidda út. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×