Handbolti

KA/Þór lagði HK

Atli Arason skrifar
KA/Þór eru ríkjandi bikarmeistarar.
KA/Þór eru ríkjandi bikarmeistarar. Vísir/Hulda Margrét

KA/Þór vann sannfærandi sigur á baráttglöðum HK-ingum í Olís deild kvenna, 27-31.

HK byrjaði leikinn betur og var snemma leik kominn með þriggja marka forystu í stöðunni 4-1. Við tók fjögurra marka áhlaup hjá KA/Þór sem náði þá forystu sem þær gáfu ekki aftur eftir en gestirnir unnu að lokum fjögurra marka sigur, eftir að hafa mest náð sex marka forystu.

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir sá um sóknarleik HK en hún skoraði alls 12 mörk úr 13 skotum og var markahæsti leikmaður vallarins í kvöld. Rakel Sara Elvarsdóttir skoraði flest mörk í liði gestanna eða 8 mörk úr 12 skotum.

Eftir sigurinn í kvöld fer KA/Þór upp í annað sæti deildarinnar með 21 stig. HK er áfram í sjöunda sæti með 9 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×