Fótbolti

Byrjunarlið Íslands gegn Tékklandi - Tíu breytingar frá fyrsta leik

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir. Stöð 2

Íslenska landsliðið í fótbolta mætir Tékklandi í kvöld á SheBelievesCup sem fram fer í Bandaríkjunum þessa dagana.

Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, hefur opinberað byrjunarliðið sem sjá má hér neðst í fréttinni.

Hann gerir tíu breytingar á byrjunarliðinu frá leiknum gegn Nýja Sjálandi á dögunum sem vannst 1-0.

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er sú eina sem heldur sæti sínu í byrjunarliðinu.

Leikur Íslands og Tékklands hefst klukkan 23:20 og verður í beinni textalýsingu á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×