Fótbolti

Tvennu Aubameyang breytt í þrennu

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Aubameyang var frábær í dag.
Aubameyang var frábær í dag. vísir/Getty

Góður dagur hjá Pierre-Emerick Aubameyang varð enn betri nú undir kvöld þegar eitt mark til viðbótar var skráð á kappann.

Aubameyang var upphaflega skráður fyrir tveimur mörkum í 1-4 sigri Barcelona á Valencia í spænsku úrvalsdeildinni í dag.

Þegar betur var að gáð skrifast fjórða mark Börsunga einnig á Aubameyang en skot Pedri, sem upphaflega var skráður fyrir markinu, hafði viðkomu í Gabonmanninum.

Spænska úrvalsdeildin hefur staðfest að Aubameyang sé skráður fyrir markinu í skýrslu dómara leiksins.

Þetta var fyrsti byrjunarliðsleikur Aubameyang fyrir Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni en hann gekk í raðir félagsins frá Arsenal á síðasta degi félagaskiptagluggans í janúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×