Chelsea þurfti framlengingu gegn C-deildarliði Plymouth

Marcos Alonso skoraði sigurmark Chelsea í dag.
Marcos Alonso skoraði sigurmark Chelsea í dag. Bryn Lennon/Getty Images

Evrópumeistarar Chelsea þurftu framlengingu til að slá C-deildarlið Plymouth Argyle úr leik í fjórðu umferð FA-bikarsins í dag. Lokatölur urðu 2-1 þar sem bakvörðurinn Marcos Alonso skoraði sigurmarkið.

Öllum að óvörum voru það gestirnir í Plymouth sem voru fyrri til að brjóta ísinn þegar Macauley Gillesphey skallaði aukaspyrnu Jordan Houghton í netið strax á áttundu mínútu leiksins.

Cesar Azpilicueta jafnaði metin fyrir Chelsea stuttu fyrir hálfleik og staðan var því 1-1 þegar gengið var til búningsherbergja.

Þrátt fyrir þunga sókna heimamanna í síðari hálfleik tókst þeim ekki að finna sigurmarkið og því þurfti að grípa til framlengingar til að skera úr um sigurvegara.

Marcos Alonso kom Chelsea loksins yfir með marki í uppbótartíma fyrri hálfleiks framlengingarinnar eftir stoðsendingur frá Hakim Ziyech.

Gestirnir í Plymouth fengu sitt tækifæri til að jafna metin af vítapunktinum á 117. mínútu, en Ryan Hardie lét Kepa Arrizabalaga verja frá sér.

Niðurstaðan varð því 2-1 sigur Chelsea og þeir verða því í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslit FA-bikarsins.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira