Íslenski boltinn

Rúnar Már fann neistann

Aron Guðmundsson skrifar
Rúnar Már Sigurjónsson er orðinn leikmaður ÍA. Reynslubolti sem hefur látið til sín taka með íslenska landsliðinu sem og erlendis sem atvinnumaður
Rúnar Már Sigurjónsson er orðinn leikmaður ÍA. Reynslubolti sem hefur látið til sín taka með íslenska landsliðinu sem og erlendis sem atvinnumaður Vísir/Arnar Halldórsson

At­vinnu- og lands­liðs­maðurinn í fót­bolta. Rúnar Már S. Sigur­jóns­son. Ætlar að láta til sín taka í Bestu deildinni í sumar. Hann fann að neistinn var til staðar til að snúa aftur heim í ís­lenska boltann. Hann er ekki mættur hingað til lands í frí og hefur skrifað undir samning við ÍA. Tíðindi sem var lengi beðið eftir en það var góð og gild á­stæða fyrir því.

Skiptin til ÍA marka endur­komu Rúnars, sem hefur spilað sem at­vinnu­maður er­lendis síðan árið 2013, í ís­lenska boltann og ljóst að um mikla styrkingu er að ræða fyrir lið ÍA. Þaul­reyndur at­vinnu- og lands­liðs­maður snúinn aftur heim en Rúnar Már lék síðast hér á landi árið 2013, þá með liði Vals.

„Auð­vitað hafði þetta kannski legið í loftinu í ein­hvern tíma,“ segir Rúnar Már. „Maður hafði hótað því að koma aftur heim síðast­liðin eitt til tvö ár. Ég var því alveg undir­búinn fyrir þetta. Til­finningin er mjög góð. Að vera kominn aftur af stað er bara frá­bært. Ég hlakka bara mikið til.“

Erfið og stór ákvörðun

Þú hefur sem sagt hugsað um það í dá­góðan tíma núna að snúa aftur heim?

„Bæði og. Þetta var spurning sem ég þurft að velta fyrir mér. Ég er að verða 34 ára gamall. Var með þriggja ára samning úti hjá liði mínu þar. Þetta var í rauninni bara spurning um það hvort ég vildi bara taka næstu þrjú til fimm árin þarna úti og enda ferilinn þar eða koma aftur heim.

Það er mjög erfið og stór á­kvörðun þegar að ég er með þrjú lítil börn líka sem er erfitt að taka úr sínu um­hverfi. Á endanum datt þetta þannig að við fjöl­skyldan myndum flytja heim. Að ég myndi gera þetta af al­vöru hér.“

Og var ÍA ekki eina fé­lagið hér á landi sem spurðist fyrir um stöðuna hjá Rúnari og hafði hann áður verið ná­lægt því að snúa aftur í ís­lenska boltann.

„Það voru alveg fleiri fé­lög. Þar síðasta sumar byrjuðu fé­lög hér heima að heyra í mér. Ég myndi segja að síðasta sumar hafi ég verið ná­lægt því að koma heim. Það varð hins vegar ekkert úr því. Núna um ára­mótin tók ég sam­talið við tvö til þrjú lið. Á endanum bý ég hér á Akra­nesi með fjöl­skyldu minni og það var því nokkuð auð­velt, þannig lagað, að fara í ÍA. Verk­efnið sem er í gangi hér er spennandi. Fram­tíðin björt.“

Rúnar Már á að baki margra ára feril í atvinnumennsku. Kazakstan, Rúmenía, Sviss og Svíþjóð eru dæmi um lönd sem hann hefur spilað í. Síðast var hann á mála hjá Voluntari í Rúmeníu.Vísir/Getty

Hafa verið með annan fótinn á Skaganum

Tengingin í fjöl­skyldu Rúnars við Akra­nes er sterk.

„Konan mín er héðan. Við höfum verið með annan fótinn hér á Akra­nesi í gegnum árin. Ferilinn minn hefur að ein­hverju leiti ein­kennst af miklu flakki um heiminn. Stundum er fjöl­skyldan með mér og stundum hafa þau haldið til hér. Hér er mjög gott að vera.“

Í rauninni snýst bara allt um að gera allt fyrir börnin. Hér er mjög gott fyrir þau að vera. Haldið vel utan um þau og hér njóta þau sín. Það gerði á­kvörðunina, um að snúa aftur heim, auð­veldari.“

Aðgerð setti strik í reikninginn

Það leið dá­góður tími frá því að það reyndist ljóst að Rúnar Már myndi skipta yfir til ÍA þar til að fé­lags­skiptin voru frá­gengin og skrifað undir samninga. Hvað olli því?

Rúnar Már býr yfir mikilli reynslu Vísir/Arnar Halldórsson

„Þetta hefði löngu verið klárað hefði ég ekki þurft að fara í þessa að­gerð seint í janúar. Eftir það lá í rauninni ekkert á. Ég vildi líka sjálfur sjá hvort að ég hefði neistann í að vinna í því að koma aftur til baka. Af því að maður vill gera þetta vel ef maður er á annað borð að koma aftur heim. Ég vildi ekki koma hingað í eitt­hvað frí. Ef að ég myndi finna neistann til að virki­lega gera þetta af al­vöru þá yrði þetta raunin. Ég á­kvað bara að gefa þessu tíma.“

Því stað­reyndin er sú að Rúnar hefur verið að glíma við krefjandi meiðsli í nára sem hafa gert honum erfitt fyrir.

„Á meðan var sam­talið við ÍA alltaf virkt. Fé­lagið gerði allt fyrir mig, leyfði mér að æfa með sér. Nýta alla sína að­stöðu. Sam­komu­lagið við fé­lagið var í rauninni alltaf klárt. Svo fer ég bara í gegnum gott próf um miðjan apríl­mánuð. Til þess að at­huga stöðuna á náranum. Hvort það væri ekki allt í standi.“

Rúnar Már spilaði síðast með Val hér á landi fyrir rúmum áratugi síðan

„Það próf kemur allt mjög vel út og í kjöl­farið var á­kveðið að skrifa undir samninginn og til­kynna svo komu mína á herra­kvöldi fé­lagsins. Það liðu kannski fleiri dagar en þurftu en gaman að til­kynna þetta á kvöldi þar sem að margar af helstu goð­sögnum ÍA voru saman­komnar.

Þetta er erfið að­gerð sem að ég var í. Það tekur tíma að vinna sig til baka eftir hana. En um leið og að­gerðin var frá var mér tjáð mögu­leg dag­setning á endur­komu inn á völlinn. Þá sá ég að ég ætti eftir að ná þessum FH leik í fjórðu um­ferð Bestu deildarinnar. Það væri fyrsti leikurinn sem ég gæti mögu­lega tekið þátt í. Ef það kæmi ekkert bak­slag.“

Rúnar Már bætti um betur og kom inn á sem vara­maður undir lok leiks þegar að ÍA mætti upp­eldis­fé­lagi hans, Tinda­stól, í Mjólkur­bikarnum, nokkrum dögum fyrir leikinn gegn FH.

„Auð­vitað var það mjög gaman að geta tekið þátt í þeim leik. Hug­myndin að því kom hins vegar frá Jóni Þóri þjálfara og þeim. Að það væri á­kveðin rómantík í þessu. Það var aldrei planið hjá mér að ná þessum bikar­leik. En þegar að maður sá dráttinn og þetta æxlaðist svona. Þá var allt í lagi að ná ein­hverjum tíu mínútum á móti Tinda­stól. Þetta var mjög gaman og á­byggi­lega stund sem maður horfir skemmti­lega á þegar að skórnir fara upp á hilluna.“

Rúnar Már í leik með íslenska landsliðinu en alls á hann að baki 32 A-landsleikiVísir

Hvað er langt í að við getum séð þig spila heilan leik í Bestu deildinni?

„Ég er kominn til baka. Mér líður mjög vel. Er í frá­bæru standi. Núna þarf ég bara mínútur inn á vellinum. Það er mjög stutt í að ég geti spilað heilan leik. Kannski ekki í næstu eða þar­næstu um­ferð. En eftir það ættum við að vera búnir að vera byggja ofan á mínúturnar sem ég er að fá. Mér líður mjög vel. Vonandi vinnur liðið bara leikina á meðan að ég er á bekknum og þurfa ekki á mér að halda alveg strax.

Og er hann spenntur fyrir komandi tímum hjá ÍA.

Frá leik hjá ÍA á yfirstandandi tímabili í Bestu deildinniVísir/Hulda Margrét

„Byrjunin er kannski svo­lítið upp og niður hjá okkur í deildinni. Ég held að tíma­bilið verði kannski svo­lítið þannig. ÍA er stór­veldi. Var að koma aftur upp í deild. Það sem ÍA þarf og vill gera núna er að festa sig í sessi aftur í efstu deild. Þetta má ekki vera tvö til þrjú ár hér og falla svo. Ég kem inn í þetta núna. Er að vinna í sömu mark­miðum og fé­lagið. Við erum alveg með liðið í það að vera ekki í fall­bar­áttu í sumar. Það er eitt­hvað sem við höfum engan á­huga á. Ég held að það muni ganga þokka­lega hjá okkur.“

Þú verður þrjá­tíu og fjögurra ára á þessu ári. Ertu al­farið kominn heim núna og reiðu­búinn í að klára ferilinn á Ís­landi?

„Já ég held að það sé nokkuð aug­ljóst. Maður á náttúru­lega aldrei að segja aldrei. Ekki nema að eitt­hvað ævin­týri skildi koma inn á borð til mín. Ég held hins vegar að það sé nokkuð ljóst að ég sé ekki að fara neitt út aftur. Ég er á­nægður með það.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×