Fótbolti

Þrír efstu á óskalista Arnars Þórs eru Íslendingar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Arnar Þór Viðarsson er í leit að aðstoðarmanni.
Arnar Þór Viðarsson er í leit að aðstoðarmanni. vísir/vilhelm

Þrír efstu á óskalista Arnars Þórs Viðarssonar yfir næsta aðstoðarþjálfara íslenska karlalandsliðsins í fótbolta eru Íslendingar. Þeir eru allir í starfi sem stendur.

Arnar leitar að aðstoðarmanni eftir að Eiður Smári Guðjohnsen hætti í síðasta mánuði. Davíð Snorri Jónasson og Ólafur Ingi Skúlason, þjálfarar U-21 og U-19 ára landsliða karla, verða Arnari til aðstoðar í vináttulandsleikjunum gegn Úganda og Suður-Kóreu í þessari viku. Í samtali við Vísi í síðustu viku sagði Arnar að gengið yrði frá ráðningu á nýjum aðstoðarþjálfara skömmu eftir leikina.

Á blaðamannafundi í dag var Arnar spurður út í stöðuna á ráðningarferli nýs aðstoðarþjálfara.

„Þrír efstu á blaði eru Íslendingar. Mér finnst best fyrir íslenska landsliðið og KSÍ að vera með íslenskan aðstoðarþjálfara, helst aðila sem er búsettur á Íslandi. Ég er ekki hundrað prósent af tímanum á Íslandi þó ég sé mikið þar. Mér og mínum yfirmönnum hefur fundist réttast að fara þá leið. Strax eftir leikina förum við í það að reyna að klára þau mál,“ sagði Arnar.

Undanfarinn áratug eða svo hefur aðstoðarþjálfari karlalandsliðsins verið í fullu starfi og engin breyting verður þar á núna að sögn Arnars.

Hann hefur nokkuð fastmótaðar hugmyndir um hvernig mann hann vill fá í starfið.

„Það sem ég vil er að vinna með fólki sem ég get treyst. Mann sem þekkir ekki bara íslenska knattspyrnu heldur einnig umhverfið, hefur reynslu í landsliðsumhverfi. Ef það er aðili með mikla reynslu og eldri gæti það verið plús en aldurinn er samt ekki svo mikilvægur,“ sagði Arnar.

Ísland mætir Úganda á miðvikudaginn og Suður-Kóreu á laugardaginn. Leikirnir verða báðir sýndir beint á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×