Fótbolti

Tvö mörk frá Rúnari Má

Anton Ingi Leifsson skrifar
Rúnar Már átti frábæran leik í kvöld.
Rúnar Már átti frábæran leik í kvöld. EPA-EFE/CHRISTIAN MERZ

Rúnar Már Sigurjónsson skoraði bæði mörk CFR Cluj í 2-0 sigri liðsins á Botosani í rúmensku úrvalsdeildinni.

Rúnar Már skoraði fyrra markið á 25. mínútu og þremur mínútum siðar hafði hann tvöfaldað forystuna.

Íslenski landsliðsmaðurinn fékk ekki tækifæri til að fullkomna þrennuna því hann var tekinn af velli á 63. mínútu.

Bæði lið fengu eitt rautt spjald í síðari hálfleik, nánar tiltekið á 90. mínútu, en þá fóru tvö rauð spjöld beint á loft.

Cluj er í efsta sæti deildarinnar með tveimur stigum meira en næsta lið er úrslitakeppni er farin í gang.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×