Fótbolti

Sjáðu sleggjuna frá De Bruyne og mörkin í sigri Real Madrid

Sindri Sverrisson skrifar
Kevin De Bruyne tilbúinn að taka aukaspyrnu í leiknum við Borussia Mönchengladbach í gær.
Kevin De Bruyne tilbúinn að taka aukaspyrnu í leiknum við Borussia Mönchengladbach í gær. AP/Laszlo Balogh

Nöfn Real Madrid og Manchester City verða í skálinni þegar dregið verður í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í fótbolta á föstudaginn. Mörkin úr sigrum liðanna í gærkvöld má nú sjá hér á Vísi.

Real Madrid kom sér áfram af öryggi með 3-1 sigri gegn Atalanta í gær. Real vann einvígið samtals 4-1.

Klippa: Real Madrid vann Atalanta

Fyrsta markið í gær fékk Real á silfurfati eftir mistök Marco Sportiello í marki Atalanta. Luka Modric þakkaði fyrir sig og kom boltanum á Karim Benzema sem skoraði. Sergio Ramos skoraði svo úr víti sem Vinícius Junior nældi í.

Luis Muriel minnkaði muninn úr fallegri aukaspyrnu en Marco Asensio innsiglaði sigurinn fyrir Real.

Klippa: Mörkin hjá Man. City

Í Búdapest unnu City-menn Borussia Mönchengladbach 2-0 rétt eins og í fyrri leik liðanna. Fyrra mark City í gær var glæsilegt skot frá Kevin De Bruyne í slá og inn. Ilkay Gündogan bætti svo við öðru eftir frábæran undirbúning Phils Foden.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×