Fótbolti

Zidane getur ekki útskýrt nýjustu meiðsli Eden Hazard

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Eden Hazard og Zinedine Zidane ræða málin í leik Real Madrid á dögunum. Hazard hefur aldrei náð sér á strik hjá spænska félaginu.
Eden Hazard og Zinedine Zidane ræða málin í leik Real Madrid á dögunum. Hazard hefur aldrei náð sér á strik hjá spænska félaginu. EPA-EFE/JuanJo Martin

Eden Hazard sneri aftur í lið Real Madrid um helgina eftir að hafa verið frá í einn og hálfan mánuð en hann meiddist aftur eftir aðeins fimmtán mínútur.

Saga Eden Hazard hjá Real Madrid hefur verið ein meiðslamartröð út í eitt en Belginn hefur meiðst aftur og aftur hjá spænska félaginu og aðeins náð að spila samtals 25 deildarleiki síðan að hann kom til liðsins frá Chelsea árið 2019.

Zinedine Zidane, þjálfari Real Madrid, gat ekki komið með útskýringu á þessum nýjustu meiðslum sem menn óttast að geti haldið Hazard frá liðinu í fjórar til sex vikur.

„Þetta er eitthvað nýtt og ég get eiginlega útskýrt það frekar,“ sagði Zinedine Zidane. Eden Hazard er með þrjú mörk og núll stoðsendingar í fjórtán leikjum í öllum keppnum á tímabilinu. Hann hefur spilað í samtals 646 mínútur sem er það sama og sjö heilir leikir.

Það er ljóst að Hazard verður ekki með Real Madrid í seinni leiknum á móti Atalanta í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Casemiro er líka meiddur en fyrirliðinn Sergio Ramos ætti að ná leiknum.

Zidane vonast samt til að Hazard komi sem fyrst til baka en hann skilur ekkert í því af hverju Belginn hefur meiðst svona oft síðan að hann kom til Real Madrid liðsins.

„Það er eitthvað að af því að hann meiddist lítið sem ekkert á ferlinum áður en hann kom til Real. Við viljum reyna að hjálpa honum og vonandi snýr hann til baka sem fyrst,“ sagði Zidane.

„Það eru hlutir sem ég get ekki útskýrt. Ég vil vera jákvæður og vona að þetta verði ekki mikið vandamál. Við verðum að reyna að finna út af hverju þetta gerðist núna en eins og er þá getum við það ekki,“ sagði Zinedine Zidane.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×