Erlent

75 fangar létu lífið í á­tökum í Ekvador

Atli Ísleifsson skrifar
Átökin blossuðu upp í fangelsum í hérðuðum Guayas, Azuay og Cotopaxi vesturhluta og miðju landsins.
Átökin blossuðu upp í fangelsum í hérðuðum Guayas, Azuay og Cotopaxi vesturhluta og miðju landsins. EPA

Að minnsta kosti 75 fangar létu lífið í blóðugum átökum liðsmanna tveggja glæpagengja innan veggja þriggja fangelsa í Ekvador í gær. Fangaverðir þurftu að leita aðstoðar hjá bæði lögreglu og hernum til að ná aftur stjórn á ástandinu í fangelsunum.

Auk þeirra 75 sem létu lífið þá særðist mikill fjöldi til viðbótar, þar á meðal fangaverðir og lögreglumenn. Átökin blossuðu upp í fangelsum í hérðuðum Guayas, Azuay og Cotopaxi vesturhluta og miðju landsins.

Talið er að átökin hafi blossað upp eftir að leiðtogi eins glæpagengisins var myrtur í einu fangelsinu, þó að upplýsingar um framvinduna séu mjög á reiki.

Edmundo Moncayo, yfirmaður fangelsismála í landinu, segir tvenn glæpasamtök bítast um yfirráð í fangelsum landsins. Átök milli fanga innan fangelsa í Ekvador eru tiltölulega algeng, en á síðasta ári lét 51 maður lífið í slíkum átökum. 

Flest fangelsi í Ekvador eru yfirfull líkt og í mörgum öðrum ríkjum Suður-Ameríku. Alls búa um 17 milljónir manna í Ekvador og telja fangarnir nú um 38 þúsund. 

Yfirvöld hafa reynt að halda fjölda þeirra sem afplána dóma í skefjum síðustu mánuði vegna kórónuveirunnar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×