Innlent

Tveir með fyrsta vinning

Sylvía Hall skrifar
Vinningshafarnir fá tæplega 11 milljónir hvor. 
Vinningshafarnir fá tæplega 11 milljónir hvor.  Vísir/vilhelm

Tveir fengu fyrsta vinning í Lottó í kvöld og hlýtur hvor 10.823.520 krónur. Annar vinningsmiðinn var keyptur í Snælandi í Núpalind en hinn í Lottó-appinu.

Þá voru einnig tveir sem fengu bónusvinninginn í kvöld og fá þeir 260.870 krónur hvor, en báðir miðarnir voru keyptir í gegnum Lottó-appið.

Enginn var með allar Jókertölur réttar en fimm voru með fjóra rétta í réttri röð og fá þeir 100 þúsund krónur hver.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×