Erlent

Trump brýtur aldargamla hefð og fyrirskipar fimm aftökur

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Ef Trump verður að ósk sinni og fimm verða teknir af lífi á þessu tímabili mun hann skrá sig í sögubækurnar sem sá forseti sem hefur fyrirskipað flestar aftökur á vegum alríkisins í heila öld eða alls þrettán.
Ef Trump verður að ósk sinni og fimm verða teknir af lífi á þessu tímabili mun hann skrá sig í sögubækurnar sem sá forseti sem hefur fyrirskipað flestar aftökur á vegum alríkisins í heila öld eða alls þrettán. AP/Evan Vucci

Nú þegar styttist í að Donald Trump forseti Bandaríkjanna yfirgefi Hvíta húsið hefur stjórn hans fyrirskipað aftökur á fimm mönnum sem á að taka af lífi áður en Joe Biden tekur við stjórnartaumunum þann 20. janúar á næsta ári.

Með þessu er brotin 130 ára löng hefð en hingað til hefur ekki tíðkast að fyrirskipa aftökur hjá alríkinu á þeim tíma sem líður frá kosningum og uns nýr forseti tekur við embætti.

Ef Trump verður að ósk sinni og fimm verða teknir af lífi á þessu tímabili mun hann skrá sig í sögubækurnar sem sá forseti sem hefur fyrirskipað flestar aftökur á vegum alríkisins í heila öld eða alls þrettán, en í Bandaríkjunum er algengara að aftökur séu framkvæmdar af einstaka ríkjum frekar en á alríkisstiginu.

Þessi refsigleði forsetans er í algjörri andstöðu við áherslur Bidens, sem hefur sagst ætla að vinna að því að afnema dauðarefsinguna í Bandaríkjunum.

Raunar voru dauðarefsingar vegum alríkisins bannaðar í langan tíma og ekki leyfðar á ný fyrr en með hæstaréttardómi árið 1988. Og þrátt fyrir það hafa þær verið afar fátíðar, uns Trump tók við embætti, eða þrjár.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×