Enski boltinn

Straujaði hornfánann og fékk gult spjald

Anton Ingi Leifsson skrifar
James Maddison og Jamie Vardy skilja ekkert í gula spjaldinu sem Stuart Attwell gefur þeim síðarnefnda í gær.
James Maddison og Jamie Vardy skilja ekkert í gula spjaldinu sem Stuart Attwell gefur þeim síðarnefnda í gær. Jason Cairnduff/Getty

Það brutust út miklar tilfinningar hjá Jamie Vardy er hann skoraði sigurmark Leicester í gær.

Jamie Vardy tryggði Leicester mikilvæg þrjú stig í gær er liðið vann 2-1 sigur á Sheffield United á útivelli.

Leicester höfðu tapað síðustu tveimur leikjum fyrir leikinn í gær; gegn Fulham og Liverpool og því voru stigin þrjú enn mikilvægari.

Vardy slapp einn í gegn og skoraði en þetta var mögulega mikilvægara mark fyrir hann en marga leikmenn Leicester því hann var að skora gegn gömlu erkifjendunum.

Enski framherjinn var nefnilega á mála hjá grönnum Sheffield United í Sheffield Wednesday á sínum yngri árum áður en hann færði sig yfir til Stocksbridge Park Steels.

Það brutst því út enn meir tilfinningar í gær fyrir Vardy í gær er hann skoraði í gömlu heimaborginni.

Hann straujaði nefnilega hornfánann í fagninu og braut hann en hann fékk að líta gula spjaldið frá dómara leiksins Stuart Attwell. Vardy skildi ekkert í gula spjaldinu líkt og samherjar hans.

Eftir sigurinn er Leicester í 4. sæti deildarinnar með 21 stig. Þeir hafa unnið sjö af fyrstu ellefu leikjunum og eru þremur stigum á eftir toppliði Tottenham.

Vardy hefur haldið uppteknum hætti á þessari leiktíð en hann er kominn með níu mörk í fyrstu tíu leikjum sínum. Að auki hefur hann gefið tvær stoðsendingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×