Atvinnulíf

Fimm ráð fyrir þá sem vilja líta vel út á fjarfundum

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Vert er að huga að nokkrum atriðum áður en fjarfundur hefst, til dæmis lýsingu, sjónarhorni og bakgrunni.
Vert er að huga að nokkrum atriðum áður en fjarfundur hefst, til dæmis lýsingu, sjónarhorni og bakgrunni. Vísir/Getty

Það er af sem áður var að nú þurfi að standa fyrir framan fataskápinn og velta fyrir sér vinnufatnaði dagsins. Eða að eyða góðum tíma í að hafa sig til áður en lagt er af stað til vinnu. Því þúsundir starfa nú heiman frá í fjarvinnu og til viðbótar við að hitta fólk á fjarfundum, hafa margir fært félagslífið yfir á netið.

En það er ekki þar með sagt að fólk vilji ekki líta vel út, rétt eins og á við um flesta þegar mætt er til vinnu.

Hér eru fimm góð ráð sem vert er að hafa í huga fyrir fjarfundi.

1. Lýsingin

Birtan þarf að falla beint framan á þig, þ.e. það þarf að passa að hún falli ekki á þig frá hliðum eða á ská eða neðan frá. Eins má birtan ekki vera fyrir aftan þig og því þarf að forðast að sitja fyrir framan glugga.

Ef þú ert í gluggalausu rými eða rými sem er dimmt er gott að stilla lampa upp fyrir framan tölvuna og beina honum þannig að ljósið skíni framan í þig.

2. Sjónarhornið

Myndavélin þarf að vera beint fyrir framan þig. 

Margir flaska á þessu, sérstaklega fólk sem er á fjarfundum með fartölvuna fyrir framan sig og horfir oft niður á skjáinn.

Einfalt og gott ráð er að stilla tölvuna í rétta hæð með því að stafla bókum undir hana. Þú þarft að horfa beint á skjáinn og myndavélin á að vera í augnhæð eða svo.

Eins að muna að sitja upprétt/ur, horfa beint fram og reyna að vera kyrr í sætinu.

Þá er gott að huga að fjarlægð við tölvuna þannig að andlitið sé ekki of nálægt myndavélinni.

3. Húðumhirða

Myndavélin getur látið þig líta mjög vel út en eins tíu sinnum verr út en þú gerir í raun. 

Mælt er með því að bæði konur og karlar setji á sig rakakrem áður en fundur hefst og ef þörf er á, að nota hyljara á bólur. Ef varir eru þurrar eða sprungnar er mælt með því að setja á sig varasalva áður en fundur hefst.

Einstaka fjarfundarbúnaður, til dæmis Zoom, býður upp á filtera sem gefa andliti og húð jafna áferð.

Að huga að ásýnd húðarinnar er því atriði sem vert er að huga að en hana er auðvitað best að tryggja með því að hugsa sérstaklega vel um húðina almennt.

4. Æfing

 Að kíkja í spegilinn og laga t.d. hárið er eitthvað sem allir ættu að gera áður en fundur hefst og forðast þannig að fara að reyna að laga sig til þegar fundur er hafinn. 

Langbest er að undirbúa sig með æfingu í mynd þannig að þú sjáir nákvæmlega hvernig þú munt líta út á fundinum, áður en hann hefst. Sumir nota símann sinn og tengja sig þannig við tölvuna eins og þeir séu á fundi.

Síðast en ekki síst er mikilvægt að læra á tæknina. Það er fátt verra en að uppgötva það að vera í mynd án þess að hafa gert sér grein fyrir því.

5. Bakgrunnur

Mælt er með hlutlausum bakgrunni, helst hvítum. 

Þá er mælt með því að það sjáist sem minnst í kringum þig. Það er til dæmis ekki gott að vera með bókahillur á bakvið þig eða að myndavélin nái inn í önnur rými. 

Allt í kringum þig getur haft truflandi áhrif á það fólk sem er með þér á fjarfundinum.


Tengdar fréttir

Ofát í fjarvinnu

Margir óttast það að aukakílóunum sé að fjölga hratt í fjarvinnu og aukinni heimaviðveru.

Leiðir til að forðast kulnun í fjarvinnu

Það er jafn mikilvægt að vera vakandi yfir kulnun í fjarvinnu eins og þegar unnið er á vinnustaðnum. Hér eru þrjú góð ráð til að hafa í huga daglega í fjarvinnu.

Gallup: Fleiri árekstrar einkalífs og vinnu í fjarvinnu

Nýjar tölur um fjarvinnu gefa vísbendingar um að mögulega séu auknar áskoranir í fjarvinnunni núna í október í samanburði við í sumar. Í dag birtir Atvinnulífið október tölur Gallup um fjarvinnu.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×