Matur

Aðventumolar Árna í Árdal: Sjávarréttasalat Maggíar

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Árni Ólafur úr Hinu blómlega búi mun koma öllum í rétta hátíðarskapið og reiða fram einn rétt á dag fram að jólum.
Árni Ólafur úr Hinu blómlega búi mun koma öllum í rétta hátíðarskapið og reiða fram einn rétt á dag fram að jólum. Vísir/Árni

Á hverjum degi fram að jólum birtum við uppskrift frá Aðventumolum Árna í Árdal sem sýndir eru á Stöð 2 í desember. Árni Ólafur úr Hinu blómlega búi mun koma öllum í rétta hátíðarskapið og reiða fram einn rétt á dag fram að jólum.  Með einskærri lífsgleði og eldmóð hefur Árni sérstakan hæfileika til að hrífa fólk með sér. Hér nær hann svo sannarlega að veita áhorfendum innblástur og töfrar fram bragðgóða og spennandi rétti alla aðventuna. 

Aðventumolann má sjá hér í spilaranum að neðan en uppskrift og leiðbeiningar er að finna neðar í fréttinni. Aðventumolar Árna í Árdal eru á dagskrá Stöðvar 2 klukkan 19.10 alla daga fram að jólum nema á föstudögum eru þeir sýndir beint á eftir Allir geta dansað.  

Klippa: Sjávarréttasalat Maggíar - Aðventumolar Árna í Árdal

Einn réttur sem Maggí, tengdamóðir mín, gerir er í sérstöku uppáhaldi hjá mér. Það er sjávarréttasalat sem hún ber alltaf fram í forrétt á gamlárskvöld en þetta er uppskrift úr dönsku blaði sem kom út í kringum 1960. Það er alltaf gerð stór skál af salati svo það verði nú örugglega afgangar til að narta í á nýársdag.

Innihald

Snöggseyði

2 lítrar vatn

2 matskeiðar

1 skalottlaukur, fínsneiddur

1 hvítlauksgeiri, marinn

3 dillgreinar

2 sítrónusneiðar

Slurkur af hvítvíni

Sjávarréttasalat

500 grömm blandaður skelfiskur, til dæmis:

risarækja, hörpudiskur, leturhumar og bláskel

1 stór hvítlauksgeiri, maukaður

1 Lambhagasalat

4 harðsoðin egg

Dressing

25 millilítrar hvítvínsedik

25 millilítrar sítrónusafi

Salt og nýmalaður pipar

Dijon-sinnep, eftir smekk

150 millilítrar ólífuolía

1 búnt graslaukur, fínsaxaður

1-2 búnt dill, fínsaxað

Leiðbeiningar

  1. Snöggseyði - Blandið vatni og salti í miðlungsstórum potti og náið upp suðunni yfir háum hita. Lækkið þá hitann og bætið við skalottlauk, hvítlauk, dilli, sítrónusneiðum og hvítvíni. Látið seyðið rétt krauma í um 20 mínútur og passið að það bullsjóði ekki. Síið seyðið, setjið í hreinan pott og stillið hitann undir pottinum þannig að soðið rétt malli.

  2. Skelfiskur - Snöggsjóðið skelfiskinn í sitthvoru lagi í seyðinu í örfáar mínútur en ekki svo lengi að hann sé alveg eldaður í gegn. Veiðið skelfiskinn úr seyðinu og setjið í skálar en þar heldur hann áfram að eldast. Kælið skelfiskinn í ísskáp þegar mestur hitinn er farinn úr honum.

  3. Dressing - Blandið saman hvítvínsediki, sítrónusafa, salti, pipar og dijon-sinnepi í lítilli skál. Hellið þá olíunni í mjórri bunu og hrærið rösklega í með þeytara. Smakkið dressinguna til þegar öll olían er komin í og blandan orðin að stöðugri þreytu. Bætið graslauk og dilli rétt áður sósan fer yfir salatið.

  4. Sjávarréttasalat - Penslið skálina sem salatið verður borið fram í með maukuðum hvítlauk. Hyljið skálina að innan með salatblöðum. Raðið skelfiskinum í skálina í nokkrum lögum. Sneiðið harðsoðnu eggin í eggjaskera, haldið sneiðunum saman, snúið þeim 90 gráður og skerið þannig í litla bita. Þekið skelfiskinn með eggjunum. Rétt áður en salatið er borið fram er dressingunni hellt yfir og það borið fram með ristuðu brauði.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×