Lífið

Sheeran kominn til landsins og ætlar að vera sem lengst

Jóhann K. Jóhannsson og Kjartan Kjartansson skrifa
Undirbúningur fyrir tvenna tónleika breska tónlistarmannsins Eds Sheeran á Laugardalsvelli um helgina er í fullum gangi. Söngvarinn er kominn til landsins og segir tónleikahaldarinn að hann ætli að reyna að vera hér eins lengi og hann getur.

Búist er við um 50.000 manns á tónleika Sheeran um helgina. Enn er unnið að því að setja upp ljósabúnað og skjái sem Sheeran flutti með sér til landsins en um tvö hundruð erlendir starfsmenn komu til landsins til að setja upp sviðið sem er 700 fermetrar að flatarmáli.

Ísleifur Þórhallsson, tónleikahaldari hjá Senu Live, segir að undirbúningurinn gangi vel þó að verkefnið sé risastórt. Hann hafi staðið yfir í heilt ár og nú sé unnið frá morgni til kvölds.

Sheeran kom til landsins með einkaþotu í nótt og er búist við því að hann nýti dvölina til að ferðast um.

„Hann dreif sig til landsins og ég held hann ætli að vera eins lengi og hann getur og gera eins mikið og hann getur. Hann er mjög hrifinn af landinu,“ segir Ísleifur.

Aðgengi að Laugardalnum verður takmarkað í kringum tónleikana um helgina. Þannig verður Reykjavegi lokað fyrir allri bílaumferð frá hádegi á laugardag og Suðurlandsbraut að hluta til. Boðið verður upp á sætaferðir til og frá Kringlunni fyrir og eftir tónleikana sem eru sagðir eiga að verða þeir stærstu í Íslandssögunni.


Tengdar fréttir

Lyftir tónleikahaldi hér á næsta stig

Tónleikar Eds Sheeran, stærstu stjörnu heims, verða þeir langstærstu sem hafa verið haldnir á Íslandi. Koma hans hefur átt sér langan aðdraganda og hann mætir með yfir 1.500 tonn af búnaði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×