Innlent

Sérsveitin kölluð út vegna líkamsárásar í Reykjanesbæ

Birgir Olgeirsson skrifar
Lögreglan á Suðurnesjum ákvað að óska eftir aðstoð sérsveitarinnar vegna málsins.
Lögreglan á Suðurnesjum ákvað að óska eftir aðstoð sérsveitarinnar vegna málsins. Vísir/Vilhelm
Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð út vegna líkamsárásar í heimahúsi í Reykjanesbæ á fimmta tímanum í dag. Að sögn aðalvarðstjórans hjá lögreglunni á Suðurnesjum átti sér stað á milli fjölskyldumeðlima en árásaraðilinn var handtekinn og var sá sem fyrir árásinni varð fluttur á sjúkrahús.

Varðstjórinn segir fórnarlamb árásarinnar ekki lífshættulega slasað.

Vildi lögreglan að öðru leyti ekki tjá sig frekar um málsatvik að svo stöddu.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×