Viðskipti innlent

Einhuga vegna launahækkana bankastjóra

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra þeim á hægri hönd.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra þeim á hægri hönd. Vísir/Vilhelm
Með launaákvörðun fyrir æðstu stjórnendur ríkisbankanna virtu stjórnendur Íslandsbanka og Landsbankans ekki tilmæli frá 2017 um hófsemi og varfærni um launaákvarðanir.

Þetta kemur fram í bréfi Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra til Bankasýslu ríkisins. Ráðherra boðar tafarlausar aðgerðir.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra taka undir það sem fram kom í bréfi fjármálaráðherra í samtali við Fréttablaðið.

Katrín segir að það liggi fyrir starfskjarastefna af hálfu ríkisins hvað varðar opinber hlutafélög um að laun skuli vera hófleg og samkeppnishæf en ekki leiðandi.

„Sömuleiðis eru í gildi tilmæli frá árinu 2017 um að stjórnir skuli gæta varfærni við launaákvarðanir stjórnenda. Skýr tilmæli fjármálaráðherra endurspegla stefnu ríkisstjórnarinnar og eru algjörlega í takt við umræðu innan hennar,“ segir forsætisráðherrann.

Sjá einnig: Bjarni fer fram á tafarlausa endurskoðun launa bankastjóra

Hún segir aukinheldur að stjórnvöld hafi verið að taka á launamálum hjá hinu opinbera, til dæmis með því að leggja niður kjararáð. Tryggja þurfi að launaákvarðanir stjórnenda hjá hinu opinbera séu teknar með gegnsæjum og fyrirsjáanlegum hætti.

Sigurður Ingi segir að hækkanirnar hafi sent röng skilaboð inn í þær erfiðu kjaraviðræður sem nú standa yfir. „Og bara ekki í þeim takti sem við viljum að íslenskt samfélag sé í,“ segir hann og bætir við:

„Staðreyndin er auðvitað sú að í alþjóðlegum samanburði er meiri jöfnuður á Íslandi. Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að hann þurfi jafnframt að vera það. Af því að við erum bæði fá og meira og minna tengd. Þessar hækkanir voru ekki í neinu samræmi við það,“ segir samgönguráðherra.

„Það er mat okkar, og að ég held næstum allra í samfélaginu, að stjórnirnar hafi ekki farið að þeim tilmælum sem þeim voru send. Það er farið fram á að þau taki þetta til endurskoðunar og þar með þessa starfskjarastefnu sína einnig,“ segir Sigurður Ingi.

Samgönguráðherra bætir því við að það sé „algjör einhugur innan ríkisstjórnarinnar um nákvæmlega það sem fjármálaráðherra sagði“. Þá segir hann að fleiri opinber fyrirtæki og fyrirtæki sem eru til að mynda í meirihlutaeigu lífeyrissjóðanna mættu taka þetta til eftirbreytni.




Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×